Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Blaðsíða 9

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Blaðsíða 9
Silja Aðalsteinsdóttir Andlit í djúpinu, brosandi Viðtal við Vilborgu Dagbjartsdóttur, skáld Vilborg Dagbjartsdóttir hefur lengi verið meðal þekktustu og vinsælustu ljóðskálda hér á landi, en hún hefur verið víðkunn fyrir svo margt annað líka að stundum er eins og hún sé ekki einhöm. Hún hefur verið einstak- lega farsæll kennari við Austurbæjarskólann í rúma þrjá áratugi. Hún er róttæk í stjórnmálum, starfaði dyggilega í félagsskap kommúnista frá unga aldri og var í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn og Fylkinguna. Hún leiddi nýja jafnréttisbaráttu í upphafi áttunda áratugarins undir merkjum rauðra sokka. Hún er einhver besti upplesari sem við eigum, bæði á ljóð og óbundið mál, og kemur oft fram á samkomum og les í útvarp. Svo dæmi sé nefnt er mörgum minnisstætt þegar hún las Börn eru besta fólk eftir Stefán Jónsson í Morgunstund barnanna. Vilborg er Austfirðingur, fædd á Vestdalseyri við Seyðisfjörð 1930. Móðir hennar hét Erlendína Jónsdóttir, dóttir Jóns Þorleifssonar og Guð- ríðar Pálsdóttur í Efra Skálateigi í Norðfirði. Faðir hennar hét Dagbjartur Guðmundsson, fæddur á Vestdalseyrinni. Foreldrar hans, Guðmundur Einarsson og Oddný Olafsdóttir á Hjalla, komu frá Vestmannaeyjum en voru ættuð undan Eyjafjöllum. Sautján ára fór Vilborg til Reykjavíkur, settist í Kennaraskólann og lauk prófi þaðan 1952. Hún var líka í leiklistarskóla; þaðan hefur hún sjálfs- traustið við að túlka texta á sinn sérstæða hátt í upplestri. Vilborg er gift Þorgeiri Þorgeirssyni rithöfundi og kvikmyndagerðar- manni. Hún á tvo syni, Egil og Þorgeir Elís. Ekki þarf lengi að lesa ljóð Vilborgar til að sjá að þar taka börn og bernskuár mikið rúm, bæði hennar eigin bernska, eigin börn og börn ann- arra. Vilborg hefur líka skrifað sögur handa börnum og fyrsta bókin henn- ar var barnabók: Alli Nalli og tunglið sem kom út 1959 (endurútgefin 1976). Aðrar barnabækur hennar eru Sögur af Alla Nalla (1965), Sagan af Labba pabbakút (1971), Tvær sögur um tunglið (1981, þar er þriðja útgáfa af Alla Nalla og tunglinu), Sögusteinn (1983) og Bogga á Hjalla (1984). Auk þess ritstýrði Vilborg barnablaði Þjóðviljans, Óskastundinni og Komp- unni, og hefur birt smásögur handa börnum í blöðum og tímaritum. 407
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.