Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Blaðsíða 122

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Blaðsíða 122
Tímarit Máls og menningar (12). Það er meira en líklegt að annar höfundur hefði valið á allt annan hátt, en það sem máli skiptir er að bréfin og viðbætur höfundar mynda eina heild og Bríet verður ljóslifandi fyrir hugsjónum lesandans. Svo lifandi varð hún fyrir mér að mér fannst ég næstum geta átt við hana orðastað. Þetta á reyndar ekki bara við um Bríeti heldur Laufeyju líka og Bríeti yngri - höfund bókarinnar. Einn stærsti kosturinn við „Strá í hreiðrið“ er hversu nálæg höfundurinn er. Það sem hún leggur til bókarinnar frá eigin brjósti er ekki skrifað af nátt- úrulausu hluttekningarleysi heldur er hún þátttakandi í gleði og sorg þessara tveggja kvenna, Bríetar og Laufeyjar. Hún reynir aldrei að hjúpa sig hlutleysi fræðimannsins, þvert á móti, hún tekur afstöðu. Hún fyllir í eyðurnar, dregur saman línur, tengir atburðum líðandi stundar, dregur lærdóma, veltir vöngum og á stundum ræðir hún beint við ömmu sína og nöfnu. Oftar en ekki er það á þann veg að hún tekur upp þykkjuna fyrir Laufeyju og Héðin þeg- ar henni finnst sú gamla gerast of tilætl- unarsöm. Sem lesandi lendir maður því stundum í samræðum með sjálfum sér bæði við Bríeti eldri og Bríeti yngri. Það eru skemmtilegar samræður. Stíll höfundar er kraftmikill og pers- ónulegur sem og söguskýringar hennar og þjóðfélagsgreining. Væri hægt að nefna mörg dæmi en ég vel nokkur af handahófi. Um deilurnar í sambands- málinu segir hún: „Enn verður víst að drepa á hina dæmalaust þvælingslegu og afspyrnuleiðinlegu karlapólitík þessara ára. . .“ (274). Um Landsbankamálið segir hún: „Þetta bankahneyksli skilst mér að sé hið fyrsta af furðu mörgum í skammri bankasögu Islendinga. En sú hefð stendur í miklum blóma á vorum dögum sem kunnugt er enda hefur hinn þroskaði helmingur þjóðarinnar verið einráður og ótruflaður við stjórnvölinn á þeim vettvangi til þessa dags.“ (114). Um bréf Héðins á menntaskólaárum hans segir hún: „Þau eru því miður skelfilegt og ótvírætt sönnunargagn þess að hinn hvimleiði menntaskólahúmor er ekki nýr af nálinni.“ (88). Kosningaréttur kvenna Flest bréfanna eru skrifuð á árunum 1910-’17 á námsárum Laufeyjar, og síðar Héðins, í Kaupmannahöfn. A þessum árum er mikið að gerast í réttindamál- um íslenskra kvenna, þær fá jafnan rétt á við karla til náms, styrkja og embætta og þær fá kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Þetta eru líka umbrotatímar í íslenskum stjórnmálum og þingmenn heyja heilmikla sjálfstæðisbaráttu í söl- um Alþingis. Frá þessu segir Bríet í bréfum sínum og höfundur bætir upp á þar sem á vantar. Það sem vakti þó at- hygli mína var að Bríet virðist hafa tak- markaðan áhuga á sjálfstæðisbaráttunni - eða bröltinu eins og nær væri að kalla það - og lái henni það hver sem vill. Eigi menn erfitt með að henda reiður á klofningi og málefnaágreiningi í íslensk- um stjórnmálum í dag, þá má það verða þeim nokkur huggun að ekki var það auðveldara í upphafi aldarinnar. Grein- ing höfundar á stjórnmálaástandinu er ekki fjarri lagi. „Ymsir flokkar eru stofnaðir á þessum árum en eiga mis- langa lífdaga; þeir klofna ýmist „þvers- um“ eða „langsum" og brotin renna saman við undanvillinga úr öðrum flokkum í ókræsilegan hrærigraut. Allir eru þessi flokkar og flokksbrot að eigin sögn fulltrúar sannra þjóðhollra Islend- inga, halda fram sjálfsforræði og þjóð- 520
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.