Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Síða 39

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Síða 39
Snorratorrek Þessi afturþunga fullyrðing hafði í fyrstu valdið Snorra dálitlum heilabrotum, en eftir frekari lestur í blöðunum um þróun skólamála, þá skildist honum að nú væri svo komið að öll börn á landinu væru lamin til bókar, hvort heldur voru börn betri manna eða skillítilla. En því, að hver ótínd meystelpa væri læs á bæði lög og saltara, átti hann bágt með að trúa og hugleiddi ekki nánar. Þegar Snorri hafði setið í tómri og myrkvaðri umferðarmiðstöð- inni góða stund og grá morgunrönd var að byrja að þoka burt haustmyrkrinu af Esjunni fór að færast líf í bæinn. Lyklum var snú- ið í skrám og ljós voru kveikt. Tvær morgunúfnar stúlkur, önnur ljóshærð og hin rauðhærð með freknur hófu glímu við risastóra kaffivél og þær tíndu brauðsneiðar og álegg út úr kæli. Urillur rútu- bílstjóri dró á eftir sér lappirnar yfir biðsalinn og sparkaði bitur í hálftóman póstpoka sem hafði orðið þar eftir á gólfinu í gærkvöldi. Svo rann hann á kaffilyktina og settist á háan þrífót við kaffibarinn og kveikti sér í krumpinni sígarettu. „Attu ekki hlandvolgan leka handa manni“ - sagði hann og blés sígarettureyk framan í rauðhærðu afgreiðslustúlkuna. „Góði dinglaðu þér“ - hóstaði hún og barði frá sér tóbaksreykinn með hendinni. En svo hellti hún kaffi í krús handa bílstjóranum og rétti honum. „Viltu eitthvað með því?“ - spurði hún svo mildari á manninn. „Nei“ - svaraði hann snubbótt og saup á kaffinu, en svo mildaðist hann líka, því þetta var ágætt kaffi og sígarettan var þó alltaf sígar- etta og hann sá að þetta var umhyggjusöm og geðug stúlka. „Þú átt kannski Mogga til að lána mér?“ - spurði hann ögn hupplegri, og þegar hún reyndist bara eiga Moggann frá í gær, þá sagði hann að það væri allt í lagi, hann hefði hvort sem var ekki haft neinn tíma til að líta í blöðin í gær. Snorri fylgdist vel með öllu, því hann skildi að honum væri enn vant ýmissa smáatriða þrátt fyrir afarnákvæman undirbúning. Hann hafði td. aldrei sopið á kaffi eða reykt tóbak, - og nú fann hann auk þess til ónota sem hann hafði ekki kennt í meira en sjöhundruð ár, - hann var svangur. Þegar ljóshærða afgreiðslustúlkan kom með öskubakka og borð- tusku í hendinni að borðinu hans þá greip hann tækifærið að segja 437
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.