Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Page 47

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Page 47
Snorratorrek Snorri færði sig nær og fór að lesa á kilina. „Snorri Sturluson I-X“ stóð þar og síðan komu einstakir undirtitlar, Hávamál og Völuspá stóð á fyrstu bók, Edda á næstu, Egla á þriðju, Njála á fjórðu, Grettla á fimmtu, Orkneyingasaga á sjöttu, þá komu þrjár bækur sem á stóð Heimskringla, og loks stóð Bréf og ritgjörðir á tí- undu bók. „Hvat?“ - sagði Snorri og svelgdist á. „Hvat?“ - hermdi skólastýran eftir honum - „þú ætlar þó ekki að segja mér að þú kannist ekki við heildarútgáfuna með nútímastaf- setningunni sem Sturlungafélagið annaðist. Hvað læriði eiginlega í þessum háskóla?“ „Eigi hefi ek . . .“ - byrjaði Snorri en snarþagnaði og beit sig svo í tunguna - „eigi lét Snorri samanskrifa þær bækr allar. Snorri did not write all these books“ - bætti hann við til öryggis. Þetta var frum- raun hans til að leiðrétta mikinn misskilning og áríðandi að konan skildi hann. „Jæja“ - sagði skólastýran áhugalaus. Það voru mikil vonbrigði fólgin í þessu eina orði, rétt eins og hún vildi segja: „Af hverju sækja aldrei aðrir en fábjánar um kennarastöður á landsbyggðinni?“ Og nú fann hún að það var af honum stæk gubbulykt. „Snorri reit ekki bóka utan þær tvær ..." - þráaðist Snorri við, en skólastýran tók af honum orðið. „Nú skal ég biðja prestinn að sýna þér hvar þú átt að búa og hvar við borðum“ - sagði hún. - „Og þú færð alveg áreiðanlega einhverja tilsögn í sögu staðarins. Við leggjum mikið upp úr því að ungl- ingarnir fái sögulegt perspektíf, og enginn er betur að sér í sögu Reykholts en presturinn." Að svo mæltu lyfti hún símtóli og hringdi og bað þann sem svar- aði að koma og hjálpa sér með lítilræði. „Skal nú Reykholtsprestr vísa mér til sængr“ - krunkaði Snorri í eigin barm meðan skólastýran talaði í símann og hann hló innra með sér yfir því hvernig hann forðum narraði Reykholtið út úr Magnúsi gamla presti með því að lofa að koma afglöpunum sonum hans til einhvers þroska. Þegar skólastýran hafði beðið prestinn að taka að sér Arinbjörn Olafsson lagði hún á og hóf þvínæst að útskýra fyrir honum eitt og annað í fyrirkomulagi skólahaldsins. Það voru margar reglur sem 445
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.