Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Page 77

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Page 77
(Herbergi -) leigjandi Ég ætla bara að benda þér á það, minn kæri, að það þarf tvo til og þú getur þá rétt eins gengið í skrokk á mér, eins og honum Sindra, þeim öðlingi sem aldrei hefur mátt vamm sitt vita. Alltaf borgaði hann leiguna þótt hann ætti ekki fyrir öðru. Þú ert varla búinn að gleyma því, það var ekki svo ósjaldan að þú þóttist þurfa á þessum aurum að halda. Og hvað veist þú nema þetta hafi allt saman verið að mínu frumkvæði, þú út og suður og aldrei heima. Hvað veist þú nema hann hafi reynst mér sá maður sem þú varst ekki. Komdu þér heim að elda kvöldmatinn slettirekan þín! urraði Sturlaugur. Já, en Sturlaugur, ertu búinn að gleyma því að þú ætlaðir að koma með soðninguna? Kem með hrogn og lifur, sagðirðu. Þess vegna er ég nú hér, Stulli minn. Hvað er þetta, þarf ég að sjá um allt eða hvað? Ertu alveg ósjálf- bjarga! Svo leit hann á Sindra og þvínæst á verkfærið í hendi sér. Þú getur þá haft þetta, sagði hann og benti með hnífnum milli fóta Sindra. Ætli það væri ekki rétt mátulegt á þig, kerlingartæfa. (. . . illyrmislegt hóstakast; líkaminn dregst í keng, engist með stríðum sogum . . .) Sturlaugur Jónsson! Hvur þremillinn er hlaupinn í þig. Við getum ekki haft þetta í matinn, sagði konan og skipti um tóntegund. Við getum ekki lagt okkur svoleiðis nokkuð til munns, það veistu vel, og leit eldsnöggt framaní Sindra. Það yrði mitt síðasta að fara að éta vini mína, það skal ég bara láta þig vita. Snautaðu þá heim! öskraði Sturlaugur án þess að snúa sér við. Þetta er ekki þitt mál. Hann tók um lim Sindra og mundaði hnífinn enn einu sinni. Sturlaugur! Sturlaugur! hrópaði konan. Ur því þú ert svona ólmur að misþyrma manninum væri ekki nær að skera af honum . . . þú veist, þetta á bakinu. Kryppuna, sagði hún hratt og signdi sig. Hún er þó miklu bitastæðari, ef út í það er farið. Bætti síðan við, lægra: Ég er viss um að það væri bara mátulegt á hann að missa hana. Ég er viss um það, Sturlaugur. Það yrði líka langtum frækilegra högg. Sturlaugur stendur upp, lítur fyrst á konu sína, síðan spyrjandi á félaga sína. Glamur myndast í flokknum og magnast smátt og smátt uns hann 475
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.