Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Page 111
Þrjár sögur I boði kímono-kaupmanns sem ég þekkti, ætlaði ég á nýárs- tískusýningu sem haldin yrði á hóteli í Kyoto tveimur dögum síð- ar. A listanum yfir sýnin^arstúlkurnar sem kæmu fram hafði ég séð nafnið Beppu Ritsuko. Eg hafði ekki gleymt nafni litlu telpunnar, þótt hitt vissi ég ekki, að hún hefði gerst tískusýningarstúlka. Eg var á leið til Kyoto, ekki til að sjá haustlitina, heldur til að sjá Ritsu- ko. Það rigndi áfram allan næsta dag. Eg eyddi síðdeginu við að horfa á sjónvarp í forsalnum á fjórðu hæð. Það voru greinilega tvær, þrjár brúðkaupsveislur í gangi í nærliggjandi herbergjum, og í forsalnum úði og grúði af gestum sem voru á leið í þær. Eg sá brúði fara hjá í hefðbundnum búningi. Brúðhjón, sem voru að koma úr nýafstað- inni athöfn, létu mynda sig á bak við mig, og ég sneri mér við til að geta séð þau líka. Gestgjafi minn, kímono-kaupmaðurinn, kom til mín og heilsaði mér. Eg spurði hvort Beppu Ritsuko væri komin. Hann benti mér með augunum að líta rétt til hliðar við mig. Þarna var hún, stóð við regnmistraðan gluggann og starði gneistandi augum sínum á brúðina og brúðgumann sem verið var að mynda. Varirnar voru samanbitn- ar. Henni hafði hlotnast að verða hávaxin og fögur kona. Mér var efst í huga að ganga til hennar og spyrja hana hvort hún myndi eftir mér, en ég hélt aftur af mér. „Hún á að bera brúðar-kímonoinn á sýningunni á rnorgun," hvíslaði kaupmaðurinn í eyra mér. SOKKAR Eldri systir mín var svo ljúf manneskja. Ég skildi ekki hvers vegna hún þurfti að deyja með þessum hætti. Hún missti meðvitund þetta kvöld þar sem hún lá í rúminu sínu. Líkami hennar spenntist upp, handleggirnir teygðu sig upp á við og krepptir hnefarnir skókust í krampakenndum rykkjum. Þegar kastið rénaði, féll höfuð hennar máttlaust yfir á vinstri helming koddans. Þá var það sem hvítur bandormur sniglaðist út um hálfopinn munn- inn á henni. Ohugnanlegur hvítleiki ormsins ásótti mig æ síðan. I hvert sinn 509
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.