Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Page 40

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Page 40
stóð því saman og yfirleitt hafi ættamöfnin ekki enst nema í tvo til þrjá ættliði. Sturl- ungar drógu t.d. nafn af Sturlu Þórðarsyni í Hvammi og nafnið tengdist þeim ekki nema í nokkra liði. Þeir komu líka ekki fram sem hópur skyldmenna heldur eins og einstak- lingar sem oft eldu grátt silfur (Sprensen 34-36, 80-86; sjá einnig Hastrup 101- 102). Ekki er þó víst að þetta sé vel valið dæmi. Ættir eins og Ásbirningar, Svínfellingar, Seldælir, Vatnsfirðingar, Oddaverjar og Haukdælir stóðu á gömlum merg og reistu valdakröfur sínar á því. Sturlungar gátu að vísu rakið ættir til Snorra goða en Snorr- ungagoðorð hafði ekki verið í fjölskyldunni lengur en frá því um 1100 þegar Þórður Gilsson, langafi Sturlu sagnritara, tók við því. Þeir voru ný valdaætt sem sótti fram og olli usla. Líklega voru barátta þeirra á víg- velli og ritstörfm tengd þörf þeirra fyrir að réttlæta uppruna sinn fyrir sér og öðrum. í ritum Sturlu Þórðarsonar er auðvelt að sjá vonbrigði hans yfir því að ættingjar hans stóðu ekki saman (sjá t.d. lýsingar á yfir- gangi Sturlu Sighvatssonar við Snorra Sturluson föðurbróður sinn í Islendinga sögu, bls. 389-392). Frændur hans eru einnig sagðir hafa höfðað til skyldleika við hann þegar þeir vildu fá hann í hð með sér eða ná sínum hlut gagnvart honum og hann beit á agnið (sjá t.d. liðsbón Þórðar kakala Sighvatssonar við Sturlu bræðrung sinn í Þórðar sögu kakala, bls. 7-8). Ættartölur hafa því ekki aðeins verið hjálpartæki vegna lagalegra skyldna og réttar. Þær hafa tengst ættametingi og kröfum til pólitískra valda, en þau færðust á æ færri hendur eftir því sem leið á goðaveldistímann. Höfðingjar á Sturlungaöld hafa talið að þeim bæri völd af því að forfeður þeirra voru goðorðsmenn í marga ættliði, sumra allt frá landnámi. Þeir hafa að þessu leyti viljað reisa völd sín á uppruna rétt eins og Noregskonungar. Höfðingjamir nota sér- stök nöfn um ættir sínar og virðast álíta að ákveðnir eiginleikar gangi í ættir. Sturla Þórðarson segir t.d. í íslendinga sögu: „Hefir þat lengi kynríkt verit með Hauk- dælum ok Oddaverjum, at þeir hafa inar beztu veizlur haldit [483].“ Þá er ættargæfa talin fylgja sumum eiginnöfnum. Þannig segir Þorvaldur í Hruna þegar hann gefur Gissuri syni sínum nafn: „Mun ek son minn láta heita Gizur, því at lítt hafa þeir aukvisar verit í Haukdælaætt, er svá hafa heitit hér til [250].“ Vináttubönd virðast líka ná til ætta engu síður en einstaklinga ef marka má viðtökur þær sem Sturla Þórðarson fær hjá konungsráðgjafanum Gauti á Mel í fyrstu utanför sinni (Sturlu þáttur 231-232). Þetta gerist á sama tíma og höfðingjamir skipta landinu á milli sín og helga sér óðul. Ættartölubálkur Sturlungu Það er samdóma álit fræðimanna að Sturla Þórðarson hafi skrifað íslendinga sögu sína eins og framhald af Sturlu sögu og viðauka við þær samtíðarsögur sem hann þekkti. Söguna mun hann hafa sett saman á síðustu æviárum sínum en hann lést 1284. Höfund- ur Sturlungu hefur því í raun aðeins haldið áfram því verki sem meistari hans hafði byrjað á. Ættartölubálkurinn, sem stendur í Sturlungu á eftir Þorgils sögu og Hafliða en á undan Sturlu sögu, er líklega einnig frá Sturlu mnninn. Hins vegar hefur höfundur Sturlungu ijálað við hann, bætt inn í upp- lýsingum um eigin ætt og fellt úr ættartölu Haukdæla sem hann notaði síðan við að 30 TMM 1993:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.