Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Side 28

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Side 28
ÁRNl BERGMANN Haustið 1826 kallaði Nikulás fyrsti Púshkín fyrir sig, létti af honum átt- hagafjötrum í Mikhajlovskoje og bauðst sjálfur til að verða hans einkarit- skoðari. Það átti eftir að reynast skáldinu erfiður og vafasamur heiður eins og síðar verður vikið að.1831 kvæntist hann Natölju Gontsjarovu - sama árið og hann lauk við frægasta verk sitt, ljóðsöguna Jevgeníj Onegín. Síðustu ár skammrar æfi voru honum um margt erfið: skáldið var gert að lágt settum hirðmanni keisarans og taldi sig sæta ýmislegri niðurlægingu við hirðina, hér við bættust erfiður fjárhagur, skuldir, afbrýði í garð aðdáenda fagurrar eiginkonu. Með ýmsum hætti var honum ögrað til að skora þann ffekasta þeirra á hólm, D'Anthés, franskan spjátrung sem sendiherra Hollands í Pét- ursborg hafði ættleitt. I því einvígi hlaut hann það sár sem dró hann til dauða. Minna verður ekki komist af með að vita um æfi þess manns sem einn hef- ur orðið þess megnugur að sameina alla Rússa: enginn neitar því að hann var þeirra mesta skáld. Svo sannarlega hefur nafn hans borist „um Rússlands óravegu víða“ - eða um „allt hið mikla Rússland“ eins og segir í frumtexta kvæðisins sem á undan fór. Hann er þjóðskáldið og þjóðarsálin holdtekin og sá sem fegurst stillir strengi tungunnar. Honum er það að þakka, segir Nabokov „að einföldustu hlutir ljúkast upp fyrir okkur í fágætasta ljóma.l<1 Hann er ekki aðeins þjóðskáld okkar, segir Andrej Bítov „afstaðan til Púshk- íns er orðin okkar þjóðareinkenni.“ 2 Hann er sá sem menn muna í gleði og sorgum - hann er gleðivaki á hátíðum sem og í fangelsum. 3 Og aldrei fá Rússar, lærðir sem leikir, sig sadda af staðreyndum og vangaveltum um ljóð og líf Púshkíns. Fjöldi manna hefur komist hjá gleymsku fýrir það eitt að þeir gengu um sömu götur og Púshkín. Allt sem honum við kemur er tínt til af ýtrustu nákvæmni eins og sjá má af því að nýlega var gefin út dagbók Púshk- íns ffá 1833-34: textinn sjálfur kemst fyrir á 27 blaðsíðum - en skýringarnar leggja undir sig 580 síður! Dauði skáldsins varð þegar árið 1837 ungu skáldi, Lermontov, efni í heiffarkvæði þar sem hann las pistilinn þeim „böðlum ffelsis og snilldar sem standa í gráðugum flokki við hásætið" og hann sakaði hiklaust um að bera ábyrgð á einvíginu illræmda 4. Allt fram á okkar dag hafa rússnesk skáld gerst ástríðumiklir túlkendur bæði listar og lífs skáldsins. Á okkar öld hefur Majakovskíj formælt í ljóði „tíkarsyninum D'Anthés.“5, Marína Tsvetaéva hellt úr skálum reiði sinnar bæði yfir „morðingja söngvar- ans“ Nikulási keisara og léttúðugri eiginkonu skáldsins 6 - og ekki hefur önnur mikil skáldkona, Anna Akhmatova, sýnt þessum sökudólgum neina miskunn heldur7. En umfram allt hafa rithöfundar og skáld Rússlands ort og skrifað um sína miklu þakkarskuld. Það var Púshkín, segir hver á fætur öðrum, sem kenndi okkur Rússum að yrkja náttúruljóð, ástarljóð, tregaljóð og söguljóð, hann 26 www.mm.is TMM 1999:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.