Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 40

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 40
35 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 Þessi áhrif fræðslunnar mátti enn sjá sjö vikum eftir að henni lauk. Ekki reyndist mögulegt að athuga langtíma áhrif í rannsókn okkar þar sem svo fáir þátttakendur svöruðu spurningalistunum í þriðju fyrirlögn tíu vikum eftir lok fræðslunnar (Kristín Elva Viðarsdóttir, 2006). Eins og með flestar rannsóknir eru nokkrar takmarkanir á þeim ályktunum sem draga má af niðurstöðum rannsóknarinnar. Þess ber að gæta að einungis einn sérfræðingur sá um fræðsluna um málefni sam- og tvíkynhneigðra. Mögulegt er að áhrifin megi að hluta til tengja sérfræðingnum sjálfum frekar en innihaldi fræðslunnar. Skipulagi fræðslunnar var hins vegar fylgt mjög nákvæmlega. Ekki er heldur hægt að útiloka að viðhorf og þekking kennara í tilraunahópi hafi breyst við það eitt að hafa samneyti við sérfræðing á sviði hinsegin fræða meðan fræðslan fór fram. Annar vandi sem fylgir rannsóknarsniðum af þessu tagi er að erfitt var að koma í veg fyrir að kennararnir í tilraunahópnum hneigðust til að þóknast rannsakendum og yrðu því jákvæðari gagnvart sam- og tvíkynhneigðum þar sem þeir svöruðu spurningalistunum fljótlega eftir að fræðslan fór fram. Við teljum það þó ólíklegt að þessi atriði hafi fyrst og fremst valdið breytingunum því mat á þekkingu sýnir að þátttakendur meðtóku efnið, sem er forsenda viðhorfsbreytinga (Ajzen, 2002; Altmeyer, 2001). Það er einnig bagalegt að ekki tókst að para saman einstaklingsbundin svör flestra þátttakenda þar sem ekki gekk að nota leyniorð í þeim tilgangi. Þar af leiðandi var heldur ekki hægt að nota þær tölfræðiaðferðir sem veittu mestan tölfræðilegan styrk til þess að meta áhrif skipulögðu fræðslunnar. Hins vegar voru áhrifsstærðirnar meðalstórar eða stórar, sem bendir til að breytingar hjá tilraunarhópi kunni að hafa áhrif á viðhorf til sam- og tvíkynhneigra nemenda. Þó svo að um 80% kennara í tilrauna- hópi og um 60% í samanburðarhópi hafi tekið þátt í báðum fyrirlögnum reyndist mögulegt að tryggja það að allir sömu kennararnir sem svöruðu spurningalistunum í forprófuninni svöruðu þeim þegar fræðslunni var lokið. Þetta var mikilvægt þar sem ekki tóku allir þátt í báðum fyrirlögnum. Þær tölfræðilegu prófanir sem mögulegt var að gera sýna að fram kom marktækur munur á öllum þáttum sem metnir voru hjá samanburðar- og tilraunahópi og styrkir það þá túlkun að fræðslan hafi skilað þeim árangri sem stefnt var að. Eins og áður hefur verið nefnt var fræðsluefnið sem notað var í rannsókninni unnið út frá fræðsluefninu sem Butler (1999) notaði í sinni rannsókn. Í framhaldi af umræðunni um jákvæð viðhorf við upphaf rannsóknarinnar er mikilvægt að geta þess að viðhorf sem mæld voru með MHS–kvarðanum sem metur kynhneigðarhroka voru tiltölulega jákvæð hjá bæði tilrauna- og samanburðarhópnum við upphaf rannsóknar- innar. MHS–kvarðinn sem saminn var af Raja og Stokes (1998) fyrir bandarískar aðstæður hafði aldrei áður verið notaður á Íslandi. Hugsanlega er mælitæki sem samið var fyrir bandarískar aðstæður fyrir áratug ekki ákjósanlegasta mælitækið fyrir íslenskar aðstæður í dag. Þar sem enginn staðlaður mælikvarði er til sem metur kynhneigðarhroka væri það verðugt verkefni að endurskoða MHS–kvarðann og laga hann enn betur að íslenskum aðstæðum til þess að gera hann betur hæfan til að meta kynhneigðarhroka á Íslandi. Í þessari rannsókn eru erlend mælitæki þýdd og staðfærð. Niðurstöðurnar gefa til kynna að heildstæðara og ítarlegra próffræðilegt mat, sérstaklega á kynhneigðarhrokakvarðanum þar sem hugað er betur að íslenskum sérkennum þeirrar hugsmíðar sem meta á, þurfi að fara fram (sjá t.d. Sigurgrím Skúlason, 2005). Þó svo að viðhorfin hafi mælst tiltölulga jákvæð bæði hjá tilrauna- og samanburðarhópnum við upphaf rannsóknarinnar var samt sem áður svigrúm fyrir jákvæða breytingu á viðhorfunum. MHS– kvarðinn var því nægilega næmur til að greina breytingu á viðhorfunum og þjónaði þannig í meginatriðum tilgangi rannsóknarinnar þó að um tiltölulega litla dreifingu væri að ræða í svörum þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbend- ingar um viðhorf starfandi grunnskólakennara á Íslandi til sam- og tvíkynhneigðra. Almennt séð benda þær til þess að viðhorf, eins og Áhrif fræðslu á viðhorf kennara til sam- og tvíkynhneigðra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.