Peningamál - 01.07.2006, Side 23
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
2
23
unar u.þ.b. 20%. Hér skiptir mestu fjárfesting í áliðnaði og orkuöflun
fyrir hann. Þessi fjárfesting nam tæplega 9% af vergri landsframleiðslu
á árinu 2005 og áætlað er að hún muni nema tæplega 10% á þessu
ári.
Búist er við að fjárfesting í ál- og orkuverum verði nokkru meiri
á árinu 2006 en gert var ráð fyrir í mars. Aukningin skýrist að hluta til
af því að verkþættir sem áður voru ráðgerðir á árinu 2008 hafa verið
færðir fram. Nú er áætlað að einungis verði fjárfest fyrir 7 ma.kr. í
stóriðju og orkuöflun á árinu 2008 (sjá nánar í rammagrein IV-1). Rétt
er að benda á að þótt ýmsar hugmyndir séu uppi um nýja fjárfestingar-
kosti í stóriðju er ekkert tillit tekið til þeirra í spám Seðlabankans að
þessu sinni. Þeirri meginreglu er fylgt að taka ekki tillit til slíkra stór-
framkvæmda fyrr en þær hafa verið formlega ákveðnar, eða því sem
næst.
Önnur atvinnuvegafjárfesting en fjárfesting í stóriðju nam tæp-
lega 11% af vergri landsframleiðslu á árinu 2005. Spáð er að þessi
fjárfesting verði litlu minni á þessu ári og því næsta. Gert er ráð fyrir
mikilli fjárfestingu í flugvélum, ferðamannaiðnaði og sjávarútvegi. Það
er því ekki að sjá að fjárfestingin í stóriðju hafi rutt burt mikilli annarri
fjárfestingu.
Samkvæmt könnun IMG telja tæplega 48% fyrirtækja að fjár-
festing þeirra verði svipuð í ár og í fyrra, 26% telja að fjárfesting þeirra
verði meiri og sama hlutfall telur að hún verði minni. Þeim sem eru
svartsýnni á umfang fjárfestingar á næstu misserum hefur fjölgað jafnt
og þétt frá fyrri könnunum.
Í grunnspánni er gert ráð fyrir að fjárfesting atvinnuveganna, að
stóriðju og orkuöflun meðtalinni, vaxi um 3% á þessu ári. Eftir 51%
aukningu á fyrsta fjórðungi þessa árs skv. tölum Hagstofunnar felast
í þessu mikil umskipti innan ársins. Því er spáð að fjárfesting atvinnu-
veganna á síðasta fjórðungi ársins verði 20% minni en á sama fjórð-
ungi síðasta árs. Spáð er að fjárfesting atvinnuveganna dragist saman
um 32% á árinu 2007 og aftur um tæplega 22% árið 2008.
Um mitt þetta ár má áætla að rífl ega 2/3 hlutum yfi rstandandi fram-
kvæmda við byggingu ál- og orkuvera verði lokið. Þegar þeim lýkur
að fullu árið 2009 mun ársálframleiðsla nema u.þ.b. 800 þús. tonn-
um, sem er 530 þús. tonna aukning frá 273 þús. tonna framleiðslu
sl. ár. Áform eru uppi um tvö ný álver, í Helguvík á vegum Norðuráls
og við Húsavík á vegum Alcoa. Einnig er áformað að stækka álverið
í Straumsvík sem er í eigu Alcan. Þessi áform eru mislangt komin,
en eru öll á athugunar- og rannsóknarstigi og því veruleg óvissa um
hvenær verði ráðist í framkvæmdirnar og hvort af þeim verður yfi r-
leitt.
Hjá Alcan í Straumsvík hefur verið lokið við lóðasamninga
við viðkomandi landeigendur og umhverfi smat hefur verið gert án
athuga semda. Þá hefur starfsleyfi verið veitt þannig að opinber leyfi
liggja fyrir, ef frá er talið framkvæmdaleyfi frá Hafnarfjarðarbæ. Jafn-
framt er búið að semja um kaup á allt að 40% þeirrar viðbótarraforku
sem þarf vegna fyrirhugaðrar stækkunar. Núverandi framleiðslugeta
er um 180 þús. tonn og áætluð stækkun er 280 þús. tonn. Afkasta-
Rammagrein IV-1
Enn er mikil
óvissa um frekari
stóriðjuframkvæmdir
1. Grunnspá Seðlabanka Íslands 2006-2008.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
% af VLF
Mynd IV-11
Fjármunamyndun atvinnuvega og í stóriðju
1991-20081
Fjármunamyndun í orkuöflun og stóriðju
Önnur fjármunamyndun atvinnuvega
Íbúðafjárfesting
Fjármunamyndun alls
0
5
10
15
20
25
30
‘07‘05‘03‘01‘99‘97‘95‘93‘91
Heimild: Hagstofa Íslands.
Magnbreyting frá fyrra ári (%)
Mynd IV-12
Vöxtur fjármunamyndunar og innflutnings
fjárfestingarvöru 1998-2005 og 1. ársfj. 2006
Fjármunamyndun atvinnuvega
Innflutningur fjárfestingarvöru
Fjármunamyndun alls
-30
-20
-10
0
10
20
30
40
50
60
‘06:1‘05‘04‘03‘02‘01‘00‘99‘98