Peningamál - 01.07.2006, Blaðsíða 32
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
2
32
1. Heildarvinnustundafjöldi er margfeldi fólks við vinnu í viðmiðunarviku og meðalfjöldi
vinnustunda í viðmiðunarviku.
2. Niðurstöður vinnumarkaðskönnunar fyrir árin 1991–2002 eru þó ekki fyllilega sambæri-
legar við niðurstöður eftir árið 2003 vegna breyttrar aðferðafræði við mælingar.
3. Sjá umfjöllun um laus störf í grein Rannveigar Sigurðardóttur (2005) ,,Ráðgátur á vinnu-
markaði“, Peningamálum 2005/1, bls. 87-97.
VI Vinnumarkaður og launaþróun
Áfram hefur dregið úr atvinnuleysi frá síðustu útgáfu Peningamála
og er það nú nálægt fyrra lágmarki. Vinnuaflsnotkun hefur aukist
en vísbendingar eru um að draga kunni úr eftirspurn eftir vinnuafli á
næstunni. Samkomulag ASÍ og SA frá 22. júní sl. hefur í för með sér
verulega aukna launabólgu og mun meiri en samrýmst getur stöðugu
verðlagi.
Atvinnuleysi nálægt lágmarki
Það sem af er ári hefur atvinnuleysi verið í takt við spá Seðlabankans
sem birtist í Peningamálum hinn 30. mars, eða 1,5%. Atvinnuleysi,
hvort heldur skráð eða að teknu tilliti til árstíðarsveiflu, stóð í stað milli
mánaða í maí og var 1,3% og 1,2%. Spáð er að atvinnuleysi verði
svipað á þessu ári og það mælist nú en að það fari vaxandi og verði
komið í 3,5% árið 2008.
Vinnuaflsnotkun eykst enn ...
Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar jókst vinnuaflsnotkun
töluvert á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tíma í fyrra, hvort heldur
hún er mæld sem fjöldi starfandi eða heildarvinnustundafjöldi.1 Fólki á
vinnumarkaði fjölgaði um 4,3%. Starfandi fólki fjölgaði nokkru meira
vegna fækkunar atvinnulausra, eða um tæp 5%.
Eftir að vinnuaflsnotkun tók að aukast á fyrsta ársfjórðungi í fyrra
jókst atvinna sveigjanlegri hluta vinnuaflsins verulega. Atvinnuþátttaka
yngstu aldurshópanna (16-24 ára) jókst úr 64% fyrir ári í 69%.
Starfandi fólki á aldrinum 55-74 ára fjölgaði um 10% og með-
alvinnutími þess jókst um 3½ klst. á viku. Á fyrsta fjórðungi ársins jókst
atvinna og vinnuframlag fólks á aldrinum 25-54 ára einnig nokkuð, en
vinnuframlag þess aldurshóps hafði breyst töluvert minna en annarra
aldurshópa um nokkurt skeið. Starfandi karlmönnum á aldrinum 25-
54 ára fjölgaði um 7½% og meðalvinnutími kvenna jókst um rúmlega
eina klst. á viku. Heildarvinnustundum þeirra fjölgaði því nokkru meira
en á vinnumarkaðinum öllum, eða um tæp 7,8%. Á vinnumarkaðinum
öllum fjölgaði vinnustundum um 6,8%.
Atvinnuþátttaka jókst um 1,3 prósentur á fyrsta fjórðungi árs-
ins frá sama tíma í fyrra og var um 81%. Atvinnuþátttaka er þó enn
töluvert minni en hún var þegar hún varð mest á árunum 1999-2001
og gæti innlend vinnuaflsnotkun því enn aukist.2
Störfum hjá vinnumiðlunum hefur fjölgað mun hægar frá haust-
mánuðum. Það sem af er ári hafa þau verið u.þ.b. 40% færri en á
sama tíma í fyrra. Stafar það þó ekki af minni eftirspurn eftir vinnuafli
heldur fremur af því að ekki þarf lengur að auglýsa störf í sama mæli
til að geta sótt um atvinnuleyfi.3
0
1
2
3
4
5
6
7
8
‘05‘03‘01‘99‘97‘95‘93‘91
Heimildir: Vinnumálastofnun, Seðlabanki Íslands.
Mynd VI-1
Atvinnuleysi janúar 1991 - maí 2006
% af mannafla
Atvinnuleysi
Atvinnuleysi (árstíðarleiðrétt)
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VI-2
Breytingar á vinnuafli 2003-2006
Breyting frá sama fjórðungi fyrra árs
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
7
Meðal-
vinnutími
(klst.)
Heildar-
vinnumagn
(%)
Atvinnu-
leysi
(prósentur)
Fjöldi
starfandi
(%)
Atvinnu-
þátttaka
(prósentur)
1. ársfj. 2004
2. ársfj. 2004
3. ársfj. 2004
4. ársfj. 2004
%
1. ársfj. 2005
2. ársfj. 2005
3. ársfj. 2005
4. ársfj. 2005
1. ársfj. 2006
1. Mánaðarlegar tölur, sýnd eru þriggja mánaða hreyfanleg meðaltöl.
Heimild: Vinnumálastofnun.
Mynd VI-3
Fjöldi lausra starfa hjá vinnumiðlunum og
nýrra atvinnuleyfa 1999-20061
Fjöldi lausra starfa
Ný atvinnuleyfi (h. ás)
Laus störf (v. ás)
0
250
500
750
1.000
1.250
1.500
1.750
0
100
200
300
400
500
600
700
20062005200420032002200120001999
Fjöldi leyfa