Peningamál - 01.07.2006, Page 77
UM ÚTRE IKNING Á
GJALDMIÐLAVOGUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
2
77
á fjóra gjaldmiðla, Bandaríkjadal, evru, japanskt jen og sterlingspund í
sömu hlutföllum og þeir hafa í SDR. Viðskipti Austur-Evrópulanda sem
nú hafa gengið í Evrópusambandið hafa verið talin með evrusvæðinu.
Samtals vega viðskipti við þessi lönd tæplega 5% í heildarviðskiptum
Íslands. Segja má að í þessari aðferð felist ákveðin tilhneiging til að
gera körfuna stöðugri. Aðferðina má einnig réttlæta með því að gengi
gjaldmiðla margra smærri landa hefur verið fest gagnvart einhverjum
af stóru gjaldmiðlunum. Rökin fyrir þessari aðferð eru hins vegar ekki
jafn sterk eftir að krónan var sett á fl ot og einnig margir þeirra gjald-
miðla sem áður voru bundnir einhverjum stóru gjaldmiðlanna. Líklegt
er að aðferðin hafi í för með sér að vægi stóru gjaldmiðlanna verði
meira en ella. Slíkt fyrirkomulag er óheppilegt ef tilgangur vísitölunnar
er að gefa rétta mynd af áhrifum gengisbreytinga á samkeppnisstöðu
og verðlag. Það gæti t.d. hafa orðið til þess að vísitalan hafi ýkt áhrif
lækkunar Bandaríkjadals gagnvart öðrum gjaldmiðlum á íslenskt efna-
hagslíf undanfarin ár.
Í íslensku vísitölunni er einnig tekið tillit til svokallaðra þriðju-
landaáhrifa.3 Þeir útreikningar hafa hins vegar ekki verið uppfærðir frá
árinu 1995. Aðeins er leiðrétt fyrir þriðjulandaáhrifum vegna útfl utn-
ings fi skafurða á stærstu markaðina. Upplýsinga var afl að um helstu
innfl ytjendur fi sks til þeirra fi mm þjóðlanda sem Íslendingar selja eink-
um fi sk til. Þessi markaðslönd eru Bretland, Bandaríkin, Frakkland,
Þýskaland og Japan. Ekki liggur fyrir verðteygni eftirspurnar á þessum
mörkuðum né verðteygni framboðs frá einstökum löndum inn á þessa
markaði. Því hefur verið farin einfaldari leið til að meta þriðjulanda -
áhrifi n. Metin hefur verið markaðshlutdeild viðkomandi samkeppnis-
lands á fi skmörkuðum stærstu fi skinnfl ytjenda frá Íslandi og helmingur
þeirrar hlutdeildar færður frá fi skinnfl ytjandanum til samkeppnislands-
ins. Þetta felur í sér að framboðs- og eftirspurnarhliðinni er gert jafn
hátt undir höfði, sem réttlæta má með því að framboðs- og eftirspurn-
arteygni sé u.þ.b. hin sama. Stærð markaðarins er metin með tilliti til
fi sknotkunar. Sú ákvörðun að miða leiðréttinguna frekar við hlutfall
af fi sknotkun fremur en framboð er umdeilanleg, en önnur lausnin er
ekki endilega betri en hin.
Við mat á þjónustuviðskiptum eru m.a. notaðar upplýsingar um
fl utninga, ýmsa viðskiptaþjónustu og landaskiptingu ferða þjónustu
sem er byggð á landaskiptingu gjaldeyrisviðskipta, kortanotkun, fjölda
ferðamanna til landsins og gistinóttum. Óvissa við mat á þessum upp-
lýsingum er mismikil og eru upplýsingar um kortanotkun bæði á tekju-
og gjaldahlið hvað áreiðanlegastar. Landaskipting gjaldeyrisviðskipta
er fengin út frá upplýsingum úr gjaldeyrisviðskiptakerfum, en það er
talið fremur óáreiðanlegt mat á umfangi eða skiptingu þjónustuvið-
skipta. Því hafa fl estar þjóðir horfi ð frá þessari aðferð og er upplýs-
ingum yfi rleitt fremur safnað með könnunum.
Gengisvísitala Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Gengisvísitala Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir Ísland er byggð upp af
þremur mismunandi vogum, vöruviðskiptavog, þjónustuvog og hrá-
3. Með „þriðjulandaáhrifum” er átt við áhrif á samkeppnisstöðu sem rekja má til innbyrðis
viðskipta viðskiptalanda viðkomandi lands. Þannig fær t.d. Noregur aukið vægi vegna þess
að norskar sjávarafurðir keppa við íslenskar sjávarafurðir á mörkuðum Evrópu og víðar.