Peningamál - 01.07.2006, Page 91
ÁLIT SENDINEFNDAR
ALÞJÓÐAGJALDEYRISS JÓÐSINS
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
2
91
9. Með tilliti til hættunnar á verðbólgu og hve mikið þarf að draga
saman framleiðslu til að ná verðbólgumarkmiðinu ef væntingar
um áframhaldandi verðbólgu festast í sessi ætti Seðlabankinn að
beita ströngu peningalegu aðhaldi. Samt sem áður eru jákvæð
merki um að peningastefnan sé farin að hafa meiri áhrif á lánskjör
heimila og fyrirtækja. Fylgjast þarf vandlega með þessari þróun
til að tryggja hæfilegt aðhald frá peningastefnunni. Auk þess ætti
að vera auðveldara að hemja verðbólguvæntingar eftir að byrjað
var að tilkynna fyrirfram um dagsetningar vaxtaákvarðanafunda
þar sem Seðlabankinn gefur út opinbera yfirlýsingu og skýringar á
ákvörðun sinni. Opinskárri umræða Seðlabankans um það vaxta-
ferli sem fylgja þarf til að ná verðbólgumarkmiðinu ætti einnig að
hafa jákvæð áhrif á verðbólguvæntingar.
Fjármálakerfi
10. Fjármálakerfið virðist traust en vinna þarf áfram að því að draga úr
veikleikum þess. Efnahagsreikningur íslenskra banka hefur þanist
ótrúlega mikið út bæði heima og erlendis. Á alþjóðamörkuðum
eru áhyggjur af því að þessi hraði vöxtur hafi dregið fram veik-
leika í íslenska fjármálakerfinu sem gætu grafið undan heilbrigði
þess á meðan hagkerfið leitar jafnvægis á ný. Mögulegir veikleikar
eru umtalsverð endurfjármögnunarþörf, gæði útlána, úthaldsgeta
bankanna á innlendum húsnæðislánamarkaði og krosseignarhald
á hlutafé.
11. Álagspróf, sem hafa verið gerð af Seðlabanka og Fjármálaeftirlitinu,
gefa til kynna að eiginfjárstaða bankanna geti staðist mikil áföll.
Verði mikil niðursveifla í hagkerfinu myndu áhrifin líklega koma
fram í minni hagnaði vegna minni ábata af markaðsviðskiptum,
hærri fjármögnunarkostnaðar og aukinna vanskila. Bankar hafa
tekið mikilvæg skref til að mæta fjármögnunarþörf til skemmri
tíma jafnvel þótt skilyrði á alþjóðamörkuðum versnuðu verulega.
Yfirvöld hafa gert viðlagaáætlun sem leitast við að tryggja fjár-
málalegan stöðugleika, kæmi til kerfislægra vandamála. Vaxandi
skilningur bankanna á þörf fyrir vandaða lausafjárstýringu ætti að
draga úr hættunni á að svipaðir veikleikar komi fram í framtíðinni.
Að auki hafa bankarnir byrjað að draga úr krosseign á hlutabréf-
um og þannig gert eignarhald gagnsærra en áður. Á þessum stað
í hagsveiflunni er einnig mikilvægt að bankarnir séu vel á verði
um gæði lánasafna. Í ljósi aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum þurfa bankarnir að gæta þess að þenja efnahagsreikning-
inn hægar út en þeir hafa gert að undanförnu. Yfirvöld þurfa að
tryggja að bankarnir haldi áfram að taka á öllum þessum veikleik-
um í starfsemi sinni.
12. Áframhaldandi styrking Fjármálaeftirlitsins er fagnaðarefni. Til
dæmis ætti útvíkkuð og kröfuharðari álagspróf að veita alþjóð-
legum mörkuðum aukið öryggi sem og vilji bankanna til að birta
opinberlega niðurstöðurnar fyrir hvern banka um sig. Til að bæta
enn álagsprófin ætti Fjármálaeftirlitið að breyta vaxtaþættinum
til að gera hann gagnsærri og að hann endurspegli betur líklegar