Peningamál - 01.07.2006, Síða 28

Peningamál - 01.07.2006, Síða 28
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 6 • 2 28 V Opinber fjármál Útlit fyrir veruleg umskipti í afkomu hins opinbera á næstu tveimur árum Það stefnir í veruleg umskipti í rekstri hins opinbera á næstu tveimur árum eins og mátt hefur greina í Peningamálum frá því í fyrrahaust þegar fyrst voru birtar áætlanir um árið 2007. Í síðustu Peningamálum var gert ráð fyrir að halli á rekstri hins opinbera yrði 1½% af lands- framleiðslu á næsta ári en nú er talið að hallinn verði um ½%. Horfur fyrir árið 2008 eru hins vegar töluvert lakari. Áætlanir sem eru byggðar á grunnspá Seðlabankans og langtímaáætlun fjármálaráðuneytisins frá síðasta hausti sýna tekjur hins opinbera dragast saman úr 47% af landsframleiðslu árið 2005 í rúmlega 40% 2008. Gjöld standa hins vegar hlutfallslega nánast í stað miðað við landsframleiðslu nálægt 44%. Afkoma hins opinbera versnar samkvæmt þessum áætlunum úr 3% afgangi í fyrra og í ár í u.þ.b. 3½% halla árið 2008. Þessi umskipti má að nokkru leyti rekja til gengislækkunar krónunnar og hækkandi verðlags á erlendum afurðamörkuðum. Hvort tveggja hækkar verðlag landsframleiðslu umfram innlent verðlag, einkum árið 2006. Við það lækka hlutföll opinberra tekna og gjalda sem hlutfall af landsfram- leiðslu. Auk þess eru gjöld hins opinbera talin hækka um nær 10% á föstu verðlagi meðan tekjur lækka um 5% á árunum 2005-2008. Tekjur dragast þá saman um næstum 25 ma.kr. en gjöld hækka um 45 ma.kr. á verðlagi ársins í ár. Ef miðað er við fráviksspá Seðlabankans með peningastefnureglu, versnar afkoma hins opinbera jafnvel enn meira, eins og nánar er greint frá hér að neðan. Peningamál voru komin á umbrotsstig þegar ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu sína 27. júní um lækkun hámarkslána íbúðalánasjóðs, frest- un ríkisframkvæmda sem ekki eru hafnar og viðræður við sveitar félögin um hliðstæða frestun. Áform um frestun framkvæmda eru enn óljós og ekki tekið tillit til þeirra hér. Svo langt er liðið á árið að frestun á þessu ári kemur mest fram árin 2007 og 2008. Áhrif á ríkisfjármál 2006 verða því trúlega lítil. Meira gæti munað á næsta ári, en stærðir eru óþekktar fram að fjárlagafrumvarpi 2007. Mestu gæti skipt ef það verður almannatrú að ríkisvaldið sé mætt til leiks í baráttunni við verðbólguna. Góð afkoma ríkissjóðs í ár sökum mikilla tekna Horfur eru á að afkoma ríkissjóðs verði svipuð í ár og á metárinu 2005 og nemi 3,8% af landsframleiðslu ef litið er fram hjá eignasölu og sveiflum í tekjuafskriftum og færslu lífeyrisskuldbindinga. Góðar Tafl a V-1 Fjármál hins opinbera 2004-20081 % af landsframleiðslu 2004 2005 2006 2007 2008 Tekjur hins opinbera 45,6 47,3 44,5 41,6 40,3 Útgjöld hins opinbera 45,3 44,3 41,3 42,2 43,6 Afkoma hins opinbera 0,3 3,0 3,1 -0,6 -3,4 Hreinar skuldir hins opinbera2, 3 19,4 10,2 5,1 5,2 8,4 Heildarskuldir hins opinbera3 36,5 29,0 22,4 20,5 21,6 1. Samkvæmt uppsetningu þjóðhagsreikninga nema annað sé tekið fram. 2. Lausafjárstaða ríkisins meðtalin. 3. Án lífeyrisskuldbindinga. Heimildir: Hagstofa Íslands, Fjármálaráðuneytið, Fjársýsla ríkisins, grunnspá Seðlabanka Íslands 2006-2008. Tekjur hins opinbera Gjöld hins opinbera Mynd V-1 Tekjur og gjöld hins opinbera 2000-2008 % af VLF Heimildir: Hagstofa Íslands, grunnspá Seðlabanka Íslands. 36 38 40 42 44 46 48 200820072006200520042003200220012000 Mat í mars 2006 Mat í júlí 2006 Mynd V-2 Breytingar á mati opinberrar afkomu 2000-2008 Hið opinbera alls % af VLF Heimild: Seðlabanki Íslands. -4 -3 -2 -1 0 1 2 3 4 200820072006200520042003200220012000
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.