Peningamál - 01.07.2006, Qupperneq 36
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
2
36
... og tvíþætt samkomulag
Samkomulag ASÍ og SA er tvíþætt. Í fyrsta lagi er gert samkomulag
milli forsendunefndar ASÍ og SA vegna endurskoðunar kjarasamn-
inga um launaþróunartryggingu sem tryggja á starfsmanni að
lágmarki 5,5% launahækkun undangengið ár. Hafi launahækkun
starfsmanns verið minni skulu laun hans hækka um mismuninn á
5,5% og þeirri launahækkun sem hann hefur fengið.
Líklegt er að fl estir starfsmenn á almennum vinnumarkaði hafi
fengið a.m.k. 4-5% umsamda launahækkun sl. ár. Umsamin laun
samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði hækkuðu 1.
janúar sl. um a.m.k. 2,5%. Til viðbótar kom sérstök hækkun vegna
breytinga á launatöfl um sem metin var sem 1% kostnaðarauki.
Þessu til viðbótar kom 26 þ.kr. eingreiðsla í desember 2005 sem
samið var um við endurskoðun kjarasamninga í nóvember sl. Jafn-
gildir eingreiðslan u.þ.b. 0,65% viðbótarhækkun launa á mánuði.
Launaþróunartryggingin ein og sér hefur því líklega ekki í för með
sér mikinn kostnað fyrir atvinnurekendur en hann gæti verið töluvert
mismunandi milli fyrirtækja. Með samkomulagi forsendunefndar er
jafnframt tryggt að kjarasamningar á samningssviði aðila haldi út
samningstímann, þ.e. út árið 2007.
ASÍ og SA, ásamt landssamtökum þess, gerðu í öðru lagi samn-
ing um 15 þ.kr. taxtaviðauka sem bætist við alla mánaðarlaunataxta
frá og með 1. júlí. Samningsaðilar áætla að hækkunin nemi um
8% fyrir meðallaun á samningssviði þeirra. Ekki er gert ráð fyrir að
launakostnaður hækki sem þessu nemur þar sem í þeim tilfellum sem
laun starfsmanns eru hærri en taxtinn eiga greiðslur umfram taxta að
lækka um jafnháa fjárhæð og nemur taxtaviðaukanum. Einnig var
samið um hækkun lágmarkstekna fyrir fullt starf úr 108 þ.kr. í 125
þ.kr., eða um tæp 16%, á samningstímanum.
Opinberir starfsmenn fá sjálfkrafa launaþróunartrygginguna
Í kjarasamningum fl estra opinberra starfsmanna er við það miðað að
samningarnir breytist í samræmi vð niðurstöður forsendunefndar ASÍ
og SA. Þetta þýðir að 5,5% launaþróunartryggingin bætist sjálfkrafa
við þessa samninga. Taxtaviðaukinn og hækkun lágmarkstekna fyrir
fullt starf er hins vegar ekki hluti af niðurstöðum forsendunefnar ASÍ
og SA heldur sjálfstæð viðbót við samning þeirra og færist því ekki
sjálfkrafa yfi r í samninga sem taka mið af ákvörðunum hennar.
Aðkoma ríkisstjórnarinnar að samkomulaginu
Ríkisstjórnin greiddi fyrir samkomulagi ASÍ og SA með eftirfarandi
aðgerðum:4
1. Í stað 2% lækkunar tekjuskattshlutfalls 2007 kemur 1% lækkun
og persónuafsláttur hækkar um 8,3% til viðbótar 2,25% hækkun
sem áður var ákveðin. Skattleysismörk hækka því um 14% um
næstu áramót í stað 8%. Auk þess verða skattleysismörk verð-
tryggð með vísitölu neysluverðs. Kostnaður vegna breytinganna
næstu áramót er óverulegur þar sem horfi ð er frá 1% af boðaðri
2% lækkun tekjuskatts, en verðtrygging skattleysismarka gæti
skert tekjur ríkissjóðs um 2 ma.kr. á árinu 2008.
2. Lög um vaxtabætur verða endurskoðuð ef bætur skerðast veru-
lega vegna hækkunar fasteignaverðs. Óvíst er hvort þetta leiðir
til kostnaðar umfram fjárlög, því að fasteignaverð hækkaði hvað
mest eftir að forsendur fjárlaga voru festar.
4. Ríkisstjórnin lýsti sig jafnframt fylgjandi markmiði ASÍ og SA um hjöðnun verðbólgu á
árinu 2007 og mun hafa náið samstarf til að ,,tryggja þær efnahagslegu forsendur sem
liggja til grundvallar samkomulagi þeirra, sérstaklega hvað varðar verðlag”. Tekið af
heimasíðu forsætisráðuneytisins (www.forsaetisraduneyti.is) 22. júní 2006.