Peningamál - 01.07.2006, Page 46

Peningamál - 01.07.2006, Page 46
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 6 • 2 46 Framsetning verðbólguspár er með öðru sniði í þessu hefti Peningamála en verið hefur. Nánar er fjallað um breytta framsetningu þjóðhags- og verðbólguspár í rammagrein VIII-3 á bls. 51-53. Birtir eru þrír verðbólguferlar. Svokölluð grunnspá byggist á væntingum mark- aðs- og greiningaraðila um þróun stýrivaxta á næstu tveimur árum (sjá mynd III-7). Þá eru birtar tvær fráviksspár til hliðsjónar. Sú fyrri byggist á óbreyttum stýrivöxtum út spátímabilið, líkt og meginspáin hefur gert til þessa. Í þeirri síðari eru vextir fengnir með einfaldri pen- ingastefnureglu sem miðar að því að verðbólgumarkmið bankans M V Eftirfarandi tafl a sýnir efnahagsspár sérfræðinga á fjármálamarkaði sem gerðar voru um miðjan júní sl. Að venju voru þátttakendur í könnuninni greiningardeildir Glitnis hf., KB banka hf., Landsbanka Íslands hf. og Ráðgjöf og efnahagsspár ehf. Auk þeirra upplýsinga sem fram koma í töfl unni var spurt um nánara álit á vaxtaferli Seðlabankans þ.e. hvenær og við hvaða gildi hámarki og lágmarki stýrivaxta yrði náð innan spátímabilsins og hver yrði næsta ákvörðun stýrivaxta hinn 6. júlí nk. Helstu breytingar frá spá sömu aðila í mars sl. eru að þeir gera nú ráð fyrir minni hagvexti á spátímabilinu, einkum á næsta ári, mun meiri verðbólgu bæði í ár og á næsta ári, eilitlu hærri stýrivöxtum og lægra gengi krónunnar á spátímabilinu. Sérfræðingar spá mun meiri verðbólgu á spátímabilinu Sérfræðingarnir spá því að verðbólga milli ársmeðaltala 2005 og 2006 verði um 7% sem er töluvert meiri verðbólga en þeir spáðu í mars. Grunnspá Seðlabankans, sem að þessu sinni byggist á vænt- ingum sérfræðinganna um stýrivaxtaþróun næstu ára og geng- isferli sem fæst úr þjóðhagslíkani Seðlabankans miðað við þann vaxtaferil, spáir um 8% verðbólgu fyrir árið 2006. Þegar litið er til ársins 2007 eykst munurinn á milli spár sérfræðinganna og grunnsp- árinnar. Svarendur búast við tæplega 6% verðbólgu en samkvæmt grunnspá Seðlabankans verður verðbólga þá töluvert meiri, eða tæplega 10%. Tvö ár fram í tímann gera sérfræðingarnir einnig ráð fyrir nokkru minni verðbólgu en felst í grunnspá bankans. Þeir spá að meðaltali rúmlega 3% verðbólgu en bankinn hins vegar tæplega 7% verðbólgu. Fráviksspá bankans með peningastefnureglu gerir hins vegar ráð fyrir um 5½% verðbólgu eftir tvö ár. Hagvaxtarhorfur hafa breyst fyrir árið 2007 Hagvaxtarspá sérfræðinganna fyrir árið 2006 er svipuð þeirri sem gerð var í mars. Hins vegar hefur spá þeirra fyrir árið 2007 lækkað. Sérfræðingarnir eru nokkuð sammála um hagvaxtarhorfur en einn svarenda telur þó að það verði samdráttur á næsta ári. Að meðaltali búast spámenn við 4½% hagvexti í ár og 1% á næsta ári sem er svipað og í grunnspá Seðlabankans. Sérfræðingar spá frekari lækkun á gengi krónunnar ... Sýn svarenda á þróun gengisvísitölu erlendra gjaldmiðla hefur aðeins breyst frá síðustu spá, einkum fyrir árið 2006. Gengi krónunnar hefur haldið áfram að veikjast á undanförnum mánuðum og reikna þeir nú með veikari krónu í samræmi við það. Spá þeir 130 stiga gengisvísitölu eftir tólf mánuði en að gengið verði heldur sterkara ári síðar. Sérfræðingarnir eru reyndar nokkuð ósammála um gengisþróunina - einkum þegar litið er til ársins 2007. Rammagrein VIII-2 Könnun á mati sérfræðinga á fjármálamarkaði á horfum í efnahagsmálum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.