Peningamál - 01.07.2006, Qupperneq 57

Peningamál - 01.07.2006, Qupperneq 57
P E N I N G A M Á L 2 0 0 6 • 2 57 umskipti voru nokkuð fyrirsjáanleg. Hjöðnun húsnæðisverðbólgunnar hefur þó verið ívið hægari en reiknað hafði verið með. Burtséð frá grunnáhrifum vegna breyttra aðferða við mat á verðlagi eigin húsnæð- is hefur íbúðaverð haldið áfram að hækka þótt verulega hafi dregið úr hraða hækkunarinnar frá fyrra ári. Á móti minni hækkun íbúðaverðs hefur vegið umtalsverð hækkun viðhaldskostnaðar vegna lægra gengis krónunnar og hærri vextir hafa einnig lítils háttar áhrif til hækkunar. Líklegt er að húsnæðisverðbólgan hjaðni enn frekar á næstu mánuðum og ekki er loku fyrir það skotið að verðið taki að lækka, einkum vegna þess að framboð húsnæðis mun aukast mikið á næstu misserum, vextir hafa hækkað og hámarksveðhlutföll bankanna og Íbúðalánasjóðs lækkað. Slík þróun gæti orðið afdrifarík og orðið til þess að draga hraðar úr eftirspurn en ella. Því er ástæða til að fylgjast náið með þróun á íbúðamarkaði á næstu mánuðum. Mjög háa vexti þarf til að ná verðbólgumarkmiðinu Hér að framan var greint frá stýrivaxtaferli sem reiknaður er með þjóð- hagslíkani Seðlabankans og peningastefnureglu sem er þannig stillt að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist innan u.þ.b. tveggja ára. Þessa útreikninga ber ekki að taka of bókstaflega – til þess er óvissan allt of mikil – en þeir gefa þó til kynna að líklega þurfi vextir Seðlabankans að fara mjög hátt til þess að ná tökum á verðbólgunni innan ásætt- anlegs tíma. Hvort stýrivextirnir þurfa að fara í þær hæðir sem peningastefnu- reglan gefur til kynna ræðst meðal annars af áhrifum stýrivaxtabreyt- inga á aðra vexti. Veruleg og breytileg tregða í miðlun peningastefn- unnar um vaxtarófið, veldur því að erfitt er að sjá fyrir hversu hátt stýrivextir Seðlabankans þurfa að fara áður en þeir hafa áhrif á allt vaxtaferlið. Undanfarin ár hafa erlend vaxtaþróun og innreið bank- anna inn á húsnæðisveð lánamarkaðinn tafið miðlunina. Breytingar á erlendum fjármálalegum skilyrðum og vænt umskipti á fasteignamark- aði gætu hins vegar orðið til þess að áhrif hærri stýrivaxta kæmu fram tiltölulega hratt. Nú þegar hafa erlendir vextir og vaxtaálag hækkað verulega og bankarnir hafa hert reglur sínar um veðmörk. Haldi þessi þróun áfram – jafnvel hraðar en til þessa – gæti þörf fyrir hækkun stýrivaxta orðið minni. Á móti kemur að hækki erlendir vextir er líklegt að aukins þrýst- ings gæti á gengi krónunnar. Dýrara verður að fjármagna viðskiptahall- ann, sem að öðru óbreyttu verður enn meiri, og vaxtamunur minnkar að innlendum vöxtum óbreyttum. Í ljósi hins mikla viðskiptahalla gæti því reynst nauðsynlegt að halda vöxtum háum lengur en þróun inn- lendrar eftirspurnar kann að gefa tilefni til á næstu misserum. Hver áhrif hárrar verðbólgu og slæmra horfa í verðlagsmálum verða á verðbólguvæntingar mun einnig skipta sköpum um hversu harkaleg viðbrögð peningastefnunnar þurfa að verða. Eftir því sem verðbólguvæntingar ágerast og verða fastari í sessi þarf kröftugri vaxtahækkun til að kveða hana niður, með tilheyrandi fórnarkostn- aði í formi tapaðrar framleiðslu og atvinnu. Veiti verðbólgumarkmið Seðlabankans verðbólguvæntingum það sterka kjölfestu að þær lækki tiltölulega hratt, verður þörfin minni, en orð og aðgerðir bankans sjálfs hafa auðvitað mikil áhrif þar á. Mynd IX-10 Mismunandi stýrivaxtaferlar % 1. Stýrivaxtaferill sem miðar að því að ná verðbólgumarkmiðinu á næstu 2-3 árum. Heimild: Seðlabanki Íslands. Stýrivaxtaferill grunnspár Stýrivaxtaspá út frá óbreyttum vöxtum Stýrivaxtaspá út frá einfaldri peningastefnureglu1 4 6 8 10 12 14 16 18 20 200820072006200520042003 Mynd IX-11 Vísitala gengisskráningar Daglegar tölur 5.janúar 1999 - 23. júní 2006 Heimild: Seðlabanki Íslands. 31.desember 1991=100 95 105 115 125 135 145 155 20062005200420032002200120001999 ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.