Peningamál - 01.07.2006, Page 70

Peningamál - 01.07.2006, Page 70
RÆÐA FORMANNS BANKASTJÓRNAR Á ÁRSFUNDI SEÐLABANKANS 2006 P E N I N G A M Á L 2 0 0 6 • 2 70 Undur að frávikin eru ekki meiriverðbólgu Þegar til alls þessa er horft er líklega meira undur en hitt að frávik- in frá spám um verðbólgu og viðskiptahalla séu ekki meiri en að framan er vikið. Enn sem komið er veldur húsnæðisverð mestu um of háar verðbólgutölur. Ef sá eini liður er skorinn frá er verðbólga hér á landi í góðu horfi, einnig í alþjóðlegum samanburði t.a.m. við önnur Evrópulönd. Flestir hafa talið að hækkun húsnæðisverðs myndi stöðvast fyrr en raun er á. Í Peningamálum, sem út komu í gær, er gerð grein fyrir því að fjármálaleg skilyrði hafi þrengst nokkuð vegna hækkunar skammtímavaxta, hækkunar lægstu mögulegra vaxta á nýjum fasteignaveðlánum, lækkunar gengis og aukinnar verðbólgu. En af ýmsum kunnum ástæðum gætir þessara peningalegu atriða lítið enn sem komið er og dregur bitið úr viðleitni til að hægja á efnahags- lífinu. Hækkun vaxta á fasteignaveðlánum í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabankans í gær er þó mikilvægt framlag nú. Vaxtastýring Seðlabankans hefur skipt sköpum Einkaneysla jókst um tæp 12% í fyrra. Slíkur vöxtur er fáséður og getur ekki varað nema skamman tíma. Ráðstöfunartekjur hafa hækk- að vegna launahækkana, aukinnar atvinnu og lækkunar skatta. Auður heimilanna hefur einnig vaxið með verðhækkun fasteigna og verð- bréfa. En flest bendir til að vöxtur eignaverðs eigi mestan þátt í vexti einkaneyslu. Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 45% s.l. hálft annað ár og hlutabréfaverð hækkaði um tæp 96% á sama tíma. Seðlabankinn telur að á næstunni hægi mjög á fasteignamark- aðnum og vöxtur einkaneyslu muni á næsta ári færast í eðlilegt horf. Þá mætti spyrja hvort verðbólguáhyggjur bankans muni ekki hverfa eins og dögg fyrir sólu, þar sem fasteignaverðsbreytingar hafa einar að undanförnu haldið uppi verðbólgutölum. Því miður er málið ekki svo einfalt. Ekki er efi á að vaxtastýring Seðlabankans hefur skipt sköpum um að aðrir þættir verðbólgunnar höfðu jákvætt mótvægi gegn húsnæðishækkunum á undanförnum misserum. Þær breytingar, sem hafa orðið á gengi hinnar íslensku krónu síðustu vikurnar, auka á erfiðleika við að festa verðbreytingar á ný í hófstilltan farveg. Nú er auðvitað hægur kostur að benda á fjölmörg ummæli og yfirlýsingar Seðlabankans um það, að hin sterka staða íslensku krón- unnar fengi ekki staðist til lengdar og fyrir því voru færð fjölmörg rök. En vonir bankans stóðu til þess, að sú gengisaðlögun, sem hlyti að verða, kæmi til nokkru síðar en raun varð á og yrði jafnframt hæg- ari en varð. Eftirsóknarvert var að gengisaðlögunin kæmi til eftir að húsnæðisverðbólga hefði hjaðnað og dregið hefði verulega úr þeirri spennu sem verið hefur og nýbirtar tölur sýna raunar að var meiri en áður hafði verið talið. Seðlabankinn getur ekki hleypt verðbólgunni í gegn Verkefni Seðlabankans við þessar aðstæður eru skýr og hann á ekkert val. Sá kostur, sem stundum er nefndur, að bankinn hleypi tiltekinni verðbólgu í gegn án viðbragða, eins og það er kallað, er ekki fær, hvorki að efni til, né samkvæmt þeim lögum sem stýra málefnum bankans. Þess vegna ákvað bankastjórnin í gær að hækka stýrivexti
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.