Peningamál - 01.07.2006, Page 73

Peningamál - 01.07.2006, Page 73
RÆÐA FORMANNS BANKASTJÓRNAR Á ÁRSFUNDI SEÐLABANKANS 2006 P E N I N G A M Á L 2 0 0 6 • 2 73 horfa í eigin barm og þeirra stofnana sem eiga að setja ramma og skilyrði, fylgjast með að reglum sé sinnt og skapa trausta umgjörð um fjármálamyndina. Tryggja þarf að þær stofnanir, sem í hlut eiga, geti keppt um hæfan mannskap sem fengist getur fljótt við vandmeðfarin viðfangsefni og notið trausts og virðingar markaðarins. Ríkisvaldið, Seðlabanki og Fjármálaeftirlit hafa þegar gert með sér formlegt sam- komulag um, hvernig eigi að fylgjast sameiginlega með vísbendingum um veikleika í fjármálastofnunum og hvernig við eigi að bregðast. Sá samstarfssamningur hefur verið lengi í burðarliðnum, er áþekkur því sem gerist með öðrum þróuðum þjóðum og hefur í sjálfu sér ekkert með núverandi óróa að gera. Núverandi fyrirkomulag Íbúðalánasjóðs fær ekki staðist Eftir að umbreytingarnar urðu á húsnæðismarkaði, hafa mál þróast svo að núverandi fyrirkomulag Íbúðalánasjóðs fær ekki staðist. Mjög hefur dregist að úr þessu yrði bætt. Það hefur leitt til þess að vaxta- myndun á þessum markaði hefur verið óraunhæf, sem aftur hefur haft neikvæð áhrif á viðleitni Seðlabankans til að kæla efnahagskerfið. Nýleg yfirlýsing forsætisráðherra varðandi Íbúðalánasjóð er þýðing- armikil og hefur fengið jákvæð viðbrögð. En þessari yfirlýsingu þarf að fylgja eftir í verki, svo fljótt sem verða má. Eftirlitsstofnanir verða að vera trúverðugar Fyrir fáeinum árum var ákveðið að skilja að Seðlabanka og Fjármálaeftirlit og var þar horft til þróunar erlendis, ekki síst í Bretlandi, sem hafði mikil áhrif í öðrum löndum. Vel má vera að þetta hafi ekki alls staðar tekist eins vel og til stóð. Í Bretlandi eru flestir bankar gistibankar og hlutfall heimabanka lítið. Þessu er öfugt farið hér á landi. Þrátt fyrir mikla og vaxandi starfsemi utan landsteina teljast allar íslenskar fjármálastofnanir til íslenskra fyrirtækja. Umræður erlendis eru nú í gagnstæða átt við þá sem við tókum mið af þegar Fjármálaeftirlit var flutt frá Seðlabanka. Ísland er lítið land með hratt stækkandi fjármála- og bankaviðskipti. Áhyggjuefni er að eftirlits- og aðhaldsstofnanir hafa ekki styrkst að sama skapi þótt þær hafi sinnt hlutverki sínu vel. Íslensku bankarnir hafa góðan skilning á því, að það hefur grundvallarþýðingu fyrir álit matsfyrirtækja og erlendra grein- ingardeilda, að stofnanir á borð við Seðlabanka og Fjármálaeftirlit séu taldar öflugar og trúverðugar. Þetta er nefnt hér af hálfu banka- stjórnar til umhugsunar um hugsanlegar endurbætur á umhverfi fjár- málastofnana á Íslandi. En fleira þarf að koma til. Efla þarf grunn íslenska skuldabréfamarkaðarins Eftir samráð ríkisstjórnar og Seðlabanka hefur verið ákveðið að auka gjaldeyrisforða bankans á næstu misserum og bæta enn eiginfjárstöðu hans, væntanlega með erlendu lánsfé en ekki með gjaldeyriskaupum á markaði. Þá er auðvitað verið að horfa til lengri framtíðar og þeirra breytinga sem eru að verða í alþjóðlegu efnahagslegu umhverfi frekar en til tímabundins óróa nú. Jafnframt hefur Seðlabankinn komið þeim tilmælum til fjármálaráðuneytis og ríkisstjórnar að gert verði átak til að efla grunn íslenska skuldabréfamarkaðarins. Ríkissjóður er óvenju vel aflögufær um þessar mundir og skuldir hans lækka ár frá ári. Þótt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.