Peningamál - 01.07.2006, Page 90
ÁLIT SENDINEFNDAR
ALÞJÓÐAGJALDEYRISS JÓÐSINS
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
2
90
eru tímanlegar, margþættar og samræmdar aðgerðir stjórnvalda
nauðsynlegar.
Ríkisfjármál
5. Lág og lækkandi skuldastaða hins opinbera ber vitni um ábyrga
stjórn ríkisfjármála og er lykilþáttur í jákvæðum horfum íslensks
þjóð arbúskapar til lengri tíma litið (e. medium-term). Breyting á
fjárlögum er engu að síður nauðsynleg þar sem ójafnvægi í þjóðar-
búskapnum er talsvert meira en vænst var við fjárlagagerð fyrir
árið 2006. Vaxandi ójafnvægi hefur aukið hættuna á að hagkerfi ð
verði fyrir snöggum og harkalegum samdrætti í kjölfar þess að skil-
yrði á alþjóðlegum fjármálamörkuðum versna fyrir Ísland.
6. Samkvæmt núverandi áætlunum mun afgangur af fjárlögum vera
minni í ár heldur en árið 2005. Þar sem spáð er mikilli umfram eftir-
spurn á árinu 2006, er þörf á viðeigandi aðgerðum til að tryggja
aðhald í fjármálum ríkis og sveitarfélaga. Þessu má ná fram með
því að draga úr mikilli nafnaukningu á samneyslu þeirri sem gert er
ráð fyrir í fjárlögum, ásamt því að fresta frekari fjárfestingum hins
opinbera. Stjórnvöld ættu jafnframt að tilkynna að aukið að hald
verði í ríkisfjármálum árið 2007 ef ekki dragi úr innlendri eftirspurn
eins og þörf er á. Mögulegar aðhaldsaðgerðir gætu tekið til fyrir-
hugaðra skattalækkana, fjárfestinga hins opinbera og samneyslu.
7. Litið fram á veginn þá er tímabært að styrkja enn frekar umgjörð
ríkisfjármála með það að markmiði að draga úr sveiflum í efna-
hagslífinu á komandi árum. Tilkoma útgjaldamarkmiða til fleiri
en eins árs í senn var fyrsta skrefið í átt að fjárlagaumgjörð sem
byggir á fastmótuðum reglum. Næsta skref er að bæta og treysta
fjárlagagerð og eftirfylgni útgjaldaáætlana til að tryggja að stefna
í ríkisfjármálum veiti samræmt og verulegt mótvægi við breyti-
leika í eftirspurn einkaaðila sem hefur valdið miklum hagsveiflum
á Íslandi. Slík umgjörð ríkisfjármála yki áhrifamátt peningastefn-
unnar og drægi þannig úr sveiflum sem hafa skapað óvissu og
erfiðleika í tímans rás.
Peningastefnan
8. Þörf verður á meiri hækkun stýrivaxta því peningastefnan á fullt
í fangi með að halda aftur af verðbólguvæntingum og færa verð-
bólguna að verðbólgumarkmiðinu. Reiknað er með að hækkun
á verði innflutnings og innlendra vara og þjónustu muni valda
mikilli verðbólgu, þótt dregið hafi úr hækkunum á húsnæðisverði,
en það hefur þrýst verðbólgunni talsvert yfir verðbólgumark-
miðið að undanförnu. Auk þess gæti launaþróun leitt til aukins
verðbólguþrýstings. Launahækkanir hafa verið talsvert meiri en
samræmist verðbólgumarkmiðinu miðað við framleiðniaukningu
vinnuafls. Auk þess er hætta á enn meiri launahækkunum vegna
hugsanlegrar endurskoðunar á kjarasamningum seinna á árinu.
Allir aðilar vinnumarkaðarins þurfa að vera meðvitaðir um að pen-
ingastefnan verður að bregðast við launahækkunum sem gætu
tafið það að verðbólgumarkmiðið næðist.