Skírnir - 01.01.1980, Page 49
SKÍRNIR
LOFTUR Á LEIKSVIÐINU
47
band hans við Dísu, Loftur og dulspekin, afstaða Lofts til ann-
arra persóna og að lokum nokkrar almennari spurningar. Til-
gangurinn með listanum var ekki sá að fá ákveðið svar við hverri
spurningu, heldur að tryggja að viðtölin færu sem minnst út í
almennar hugleiðingar um persónuna, verkið eða annað því
tengt. Spurningarnar snertu öll þau atriði í textanum, sem mér
virtist að leikarinn gæti tekið tillit til þegar hann léki hlut-
verkið. I viðtölunum kom svo í ljós að sumar spurninganna áttu
ekki við og nýjar skutu upp kollinum eftir því sem myndin
skýrðist af túlkuninni. Markmiðið með viðtölunum var að fá
sem skýrasta og nákvæmasta mynd af athöfnum leikaranna á
sviðinu og þeirri innri þróun sem endurspeglaðist í þeim. Þeir
Gunnar og Arnar fluttu sig þannig yfir í hlutverk áhorfandans
og lýstu því sem þeir töldu að hefði borið fyrir augu hans.
Engin ástæða er til að draga dul á það að þessi aðferð er ekki
með öllu hættulaus og að á henni eru vissir annmarkar, sem
kunna að setja svip á niðurstöðurnar. Alllangur tími var liðinn
frá því Gunnar og Arnar léku hlutverkið og því ekki óhugsandi
að þeim kunni að hafa skeikað í smærri atriðum. Auk þess er
ekki heldur hægt að útiloka að einhver óskhyggja hafi ráðið og
þeir lýst því sem þeir vildu sjálfir að áhorfendur hefðu séð, en
ekki því sem áhorfendur töldu sig sjá í raun og veru. Tækni
leikarans og túlkunarmáti ráða að sjálfsögðu mestu um hvað
til skila kemst og því getur verið allvarasamt að skilja í sundur
leiktækni og leikhugsun, eins og ég hlaut að gera; það nær vita-
skuld engri átt að krefjast þess af leikara, að hann segi það í
orðum sem hann notar líkama sinn og persónuleika til þess að
tjá. Hins vegar ber þess að gæta að báðir leikararnir sem hér
um ræðir ráða yfir mikilli leiktækni og því er heldur ósennilegt
að þeim hafi ekki tekist að koma á framfæri þeim grundvallar-
skilningi sem þeir lögðu í hlutverkið. Engu að síður er hér um
þó nokkra takmörkun að ræða, sem hefur í för með sér að allir
þættir leiktúlkunarinnar eru ekki með í þeim rnyndum sem
verður brugðið upp hér á eftir.
Gunnar Eyjólfsson er sá leikari sem oftast hefur leikið Galdra-
Loft, eða alls þrisvar sinnum: hjá L.R. 1948, Leikfélagi Akur-
eyrar 1965 og Þjóðleikhúsinu 1967. Hann áleit ekki að neinn