Skírnir - 01.01.1980, Blaðsíða 96
94
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
SKÍRNIR
Leikurinn hefst í húsakynnum Heimastjórnar-Dabba. Gvend-
ur skurður er á tali við Dabba. Erindi hans er að leita sátta með
Dabba og Sjálfstæðis-Guddu, en þau hafa verið óvinir um langt
skeið. Hugmynd Gvendar er að þau hefji sambúð, en Dabbi tek-
ur því víðs fjarri. Þeir slíta talinu og fara. Miðaldra fröken,
Ingibjörg, kemur inn andaktug og syngur lítið lag um ósiðsemi
karlmanna. Hún hefur heyrt samtalið og ætlar sér að koma í veg
fyrir sambúðina með því að kæra til „hinnar pólitísku sóknar-
nefndar“. Hún er ekki fyrr farin en maður kemur inn um
gluggann. Það er Sámur, ritstjóri Svipunnar. Hann á stutt ein-
tal um „bankablóðsugur og embættismannaskriðkvikindi“,
leggst svo til livílu og sofnar. Ingibjörg birtist aftur með sóknar-
nefndina. Þau eru öll æst yfir væntanlegu sambandi Dabba og
Guddu og fela sig til að sjá hverju fram vindur. Þá vaknar Sám-
ur. Hann sér Ingibjörgu og gerir sér þegar dælt við hana. Eftir
,,kraftblikk“ og kossa hverfa þau af sviðinu upp í herbergi Ingi-
bjargar „til að skrifa siðferðisgrein í Svipuna". Dabbi og Gudda
koma inn. Þau hafa sæst og ætla að gera samning sín á milli um
sambúð. Þau ræða samninginn og ganga síðan til hvílu full
ákafa. Tjaldið fellur stutta stund. Þau eru enn í rúrninu þegar
dregið er frá. Dabbi les upphátt úr Svipunni fyrir Guddu dá-
góða stund. Þegar þau slökkva Ijósin ræðst sóknarnefndin fram
og skilur þau að. Hún ákveður þegar í stað að efna til borgara-
fundar um „forsmánina".
Á borgarafundinum taka margir til máls um sambúð þeirra
Dabba og Guddu. Vitnað er í forn lög, reynslu annarra þjóða,
minnt á kvenréttindi og rifist um hjónaband. Loks tekur séra
Einar til máls. Hann hvetur til sátta: „... þó að samviskan
kynni nú að hvísla að einhverjum, að þetta væri nú synd, þá
er það nú svona með samviskuna, að þótt hún sje gull hjá smæl-
ingjum, þá mega höfðingjarnir ekki láta hana verða sjer ofur-
efli.“ Atkvæði eru felld um sambúðina, en fundurinn leysist
upp og fundarstjóri biður þess að tjaldið falli, „... því annars
verður hjer generalslagur og skandall.“
Þriðji þáttur gerist heima hjá séra Einari. Vinur hans Bar-
Lehmann „spriklar á gólfinu". Einar á von á Dabba og Guddu
til vígslu, en vonar að andarnir láti sjá sig áður. Hann sækir