Skírnir - 01.01.1980, Page 150
SKÍRNIR
148 ÓLAFUR JÓNSSON
sviðsetningar leikritanna hafi til þessa verið langt um of háðar
natúralískum leikskilningi og leikmáta. Allténd benti sýning
Leikfélags Akureyrar, sviðsetning Maríu Kristjánsdóttur á
Strompleiknum, 1972, til þess að tilvinnandi væri að prófa nýj-
ar aðferðir að leikjunum. Þar var leikinn hreinn og beinn trúð-
leikur, leikmyndin og gervi leikenda notfært til að ítreka mann-
greinarmun fólksins í leiknum, hina tvo heima hans, og greina
hann um leið frá heiminum utan leiksviðs; ekkert lagt í sviðsetn-
ingu og leikmáta upp úr tillíkingu við veruleika utan leiksins.
Ekkert virðist því til fyrirstöðu að með leiknari, mikilhæfari
áhöfn mætti gera enn meira úr Strompleiknum eftir viðlíka að-
ferð. Og efnismeira og fjölskrúðugra leikrit, eins og Prjónastof-
an Sólin, mundi án efa njóta góðs af sambærilegum vinnubrögð-
um.
Svo mikið er víst að enn hefur ekki tekist að semja þessum
leikjum í sviðsetningu viðlíka sjálfráðan leikstíl við ritháttinn
á verkunum. Fyrr en það tekst hafa í rauninni ekki verið færðar
sönnur á leikrit Halldórs Laxness, að þau séu neitt annað en
aukageta með skáldsögum hans.
VI
Einnig í fyrstu leikritum Jökuls Jakobssonar er auðráðið sam-
hengi við raunsæislega frásagnarhefð og fyrri skáldsögur höf-
undar sjálfs. Raunar má segja um Jökul, öfugt við tam. Agnar
Þórðarson, að það sem einkum viðhaldi áhuga á skáldsögum
hans sé vitneskja sem þangað verði sótt um hugmyndaforða og
hugmyndafar leikritanna.
Aðalefnið er að mestu ef ekki alveg allt það sama í Hart í bak
og skáldsögunni Dyr standa opnar, tveimur árum fyrr (1960).
Og það er auðvitað hægurinn hjá að sjá í hinni reykvísku slömm
sem leikurinn lýsir og fólkinu sem byggir hana stílfærða eftir-
mynd raunverulegra þjóðfélagsaðstæðna og raunhæfra mann-
gerða, láta þá Jónatan strandkaftein standa með táknlegu móti
fyrir kynslóð aldamóta og sjálfstæðistöku en Áróru spá- og
vændiskonu, Finnbjörn nýríka skransala fyrir ríkjandi kynslóð í
samtíma höfundar og leikritsins. Þá verður líka hvortveggja ljóst