Skírnir - 01.01.1980, Page 171
SKÍRNIR
LEIKRIT OG LEIKHÚS
169
í lýsingu þessara fordæmdu hjóna er tilfinningaleg kvika
leiksins, ofsi, óhugnaður og heift, líkt og áður í skiptum Péturs
og móður hans í Pétri og Rúnu. Gegn hinu úrkynjaða og úr-
kula borgarlífi í leiknum teflir Birgir fram táknlegum mann-
gervingum annarra úrkosta og lífshátta, hins fagra, sanna og
góða lífs í sveitinni sem Hans hefur afsalað sér í eftirsókn eftir
vindi fyrir sunnan. En ógerningur virðist að lýsa heimvoninni
til sveitarinnar og upprunans sem raunhæfum úrkosti í sam-
hengi raunsæislegrar persónugerðar og atburða. Enda megnar
höfundur ekki að setja kröggur Hans og Hönnu að sínu leyti
í samhengi trúverðugrar, raunliæfrar samfélagslýsingar. Með
Gamla, hinum dularfulla auðmanni sem eflir Hans til fjár og
mun steypa honum á ný, leysist atburðarás leiksins upp í meló-
dramatískan reyfara, líkt og áður samfélagslýsingin hjá Agnari
Þórðarsyni. Það eiga þeir Agnar og Birgir raunar sammerkt með
fleiri höfundum með tilhneigingu til þjóðfélagsádeilu hversu
örðugt þeir eiga með að lýsa handhöfum og handhöfn hins illa
valds auðsins í raunsæislegu samhengi.
Einnig leikrit Vésteins Lúðvíkssonar eru af natúralískum
toga spunnin, svo frábrugðin sem þau eru að forminu til. Og
með Stalín er ekki hér tókst honum reyndar, að því er virtist,
að vekja raunsæislegt frásagnarform til nýrra nota á leiksviði.
Allténd var það pólitíska efnið í leiknum sem við fyrstu sýn
vakti mestan áhuga á honum.
Og því er vissulega haganlega fyrir komið í leiknum með
sínu natúralíska frásöguformi, raunhæfu persónugerð og um-
hverfislýsingu. Saga Þórðar Karlssonar, járnsmiðs og sósíalista,
átökin sem verða í fjölskyldu hans um vorið 1957, fall hans og
niðurlæging að lokum, hefur allt augljósa sögulega skírskotun
út fyrir leikinn, til uppreisnarinnar í Ungverjalandi og afhjúp-
unar stalínismans og fyrstu vinstristjórnarára hér á landi. Og
með lilutverki Huldu liöfðar leikurinn til umræðu samtímans
um kvenfrelsis- og jafnréttismál. En liið pólitíska efni er allt
fellt í skefjar raunsæislegs fjölskylduleiks, og það eru að vísu
natúralískir innviðir mannlýsingarinnar í sjónarmiðju leiks og
fjölskyldulífsins í kringum hann sem mestu skipta í Stalín er
ekki hér. Leikurinn gengur út á afhjúpun Þórðar uns hann sit-