Skírnir - 01.04.1990, Blaðsíða 120
114
STEFÁN ÓLAFSSON
SKlRNIR
ismans og allt fram á tuttugustu öldina.
Bandaríski þjóðfélagsfræðingurinn Reinhard Bendix hefur bent á
vandamál sem leiddu af hefðartryggð verkalýðsins.22 Þar á hann við
víðtæk agavandamál sem komu fram á fyrstu skeiðum iðnaðarkapítal-
ismans. Verkalýðurinn tregaðist við að láta að stjórn og vinna eftir þeim
reglum sem atvinnurekendur settu í verksmiðjuvinnu borganna. I land-
búnaði og heimilisiðnaði, sem voru ríkjandi atvinnuhættir fyrir tíma
iðnríkisins, fór vinnan einkum eftir hrynjanda náttúrunnar og reglum
hefðarinnar. Vinnutíminn réðst af eðli verkefnanna, þörfum búpenings
og venjubundnum þörfum mannanna. Innan þessa ramma höfðu
verkamaðurinn og handverksmaðurinn allnokkurt svigrúm og sjálf-
ræði, og verkefni þeirra voru að öðru jöfnu fjölbreytileg. I störfum
þeirra skiptust á reglubundin vinna, rífandi skorpuvinna og löng frí, ef
svo bar undir, til dæmis var gjarnan mikill munur á sumarvinnu og
vetrarvinnu.
Verksmiðjuvinnan krafðist annarra hátta, aukins skipulags og þar
með reglubundins aga fyrir verkamennina. Vélbúnaður og stjórnun
stórra vinnustaða kröfðust þess að verkamaðurinn lyti valdi verkstjór-
ans og klukku hans, og fórnaði þannig stórum hluta af því sjálfræði sem
hann hafði haft í landbúnaðarþjóðfélaginu. Hefðartryggð verkamanna
stóð hins vegar í vegi fyrir því að þetta gengi greiðlega fyrir sig.23
Atvinnurekendur beittu ýmsum aðferðum til að hemja verkalýðinn
í verksmiðjuvinnunni, allt frá því að reyna að innræta þeim hina nýju
siði, með aðstoð trúarbragðanna, til þess að beita þá harðræði og kúg-
un. Andrew Ure, sem frægur var sem talsmaður hagsmuna atvinnurek-
enda og siðvæðingar meðal verkalýðsins, lýsir vandamálinu í hnotskurn
í eftirfarandi ívitnun:
Að mínu viti fólst aðalvandamál framleiðslunnar ekki í því að uppgötva
hentugan vélbúnað til að spinna baðmullina í nytsamlegan þráð, heldur hinu
að skipuleggja starfsliðið í samvinnandi heild og laða fram rétta virkni og
réttan hraða í sérhverjum þætti starfseminnar, en þýðingarmest var þó að
22 R. Bendix, Work and Authority in Industry: Ideologies of Management in
the Course of Industrialization (L.A.: John Wiley, 1956), kafli 2b til 2e og
4b.
23Bendix, sama rit; Weber, framangreint rit; sjá einnig umfjöllun um sama
efni í E. P. Thompson, The Making of the English Working Class