Þjóðmál - 01.09.2014, Page 5
4 Þjóðmál haust 2014
Af vettvangi stjórnmálanna
_____________
Björn Bjarnason
Áhrifavaldar: Juncker —
Omos — Skotar
Hér verður rætt um þrjú málefni: Endalok ESB-umsóknarferils Íslend-
inga, lekamálið og uppstokkun á rit stjórn
365 miðla . Hvað eiga þessi mál sam eigin-
legt? Áhrifavaldar um framvindu þeirra
koma á óvart .
I .
Undanfarin fimm ár hefur hópur Ís-lend inga neitað að horfast í augu
við staðreyndir ESB-málsins . Hann hefur
neitað að viðurkenna aðlögunar-eðli um-
sóknarferlisins og lagt rækt við þá blekkingu
að unnt sé að sækja um ESB-aðild til þess
eins að sjá hverju viðræðurnar skili og bera
það sem út úr þeim kemur undir þjóðina .
Þetta sjónarmið átti við rök að styðjast fyrir
25 árum þegar aðild EFTA-ríkjanna að ESB
var á dagskrá . Þeir sem enn halda því á loft
eru aldarfjórðungi á eftir tímanum .
Snemma árs 2011 var lokið rýniferli
vegna sjávarútvegsmála í viðræðum fulltrúa
ESB og Íslands . Að því loknu skyldi hvor
aðili um sig skila rýniskýrslu . Hún barst
hins vegar aldrei frá ESB og neituðu
Íslendingar að kynna samningsmarkmið
sín í sjávarútvegsmálum yrði þessi skýrsla
ekki afhent . Leit ríkisstjórn Jóhönnu svo á
að á ríkjaráðstefnu sem efnt var til hinn 18 .
desember 2012 réðust úrslit deilunnar um
þetta . Þá létu Brusselmenn skýrsluna þó
ekki af hendi .
Í janúar 2013 sló Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra frekari viðræðum við
ESB á frest . Gengið var til kosninga í apríl
2013 og galt Samfylkingin, ESB-flokkur-
inn, afhroð . Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur settust við völd en báðir
flokk ar boðuðu fráhvarf frá ESB-viðræðun-
um í kosningabaráttunni í samræmi við
niður stöður landsfunda sinna .
Sumarið 2013 fóru utanríkisráðherra,
Gunn ar Bragi Sveinsson, og forsætisráð herra,
Sig mundur Davíð Gunnlaugsson, til Brussel
og kynntu stefnu ríkisstjórnarinnar . Við ræð -
um um ESB-aðild yrði ekki fram hald ið . Síð-
sumars var viðræðunefnd Íslands aflögð .