Þjóðmál - 01.09.2014, Side 6

Þjóðmál - 01.09.2014, Side 6
 Þjóðmál haust 2014 5 Á fyrri hluta árs 2014 lagði Gunnar Bragi Sveinsson fram tillögu til þingsályktun ar um afturköllun ESB-umsóknarinnar . Naut hún stuðnings meirihluta þingmanna . Ráð- herranum tókst hins vegar ekki að tryggja framgang tillögunnar fyrir þinglok . Þvæld- ist helst fyrir mönnum hvort, hvernig og hvenær skyldi efnt til þjóðar atkvæða greiðslu um ESB-málið á þessu stigi þess . Allt frá upphafi hefur ESB-aðildar um- sókn in valdið miklum deilum og klofið þjóð og flokka . Þessi ágreiningur náði há marki eftir að tillagan um afturköllun umsókn- ar innar var kynnt . Hin ólíku sjónarmið er einfaldlega ekki unnt að sætta . Engin mála- miðl un finnst milli þess að vera með eða á móti aðild að Evrópusambandinu . Tilraunir til sátta hafa snúist um aðferðina við töku ákvarð ana í málinu . Áður en alþingi tók afdrifaríka ákvörðun sína hinn 16 . júlí 2009 hafnaði þingmeiri- hluti sáttatillögu um að þjóðin skyldi spurð hvort hún vildi að sótt yrði um aðild . Á þingi fyrri hluta árs 2014 lýstu fulltrúar allra flokka stuðningi við það sjónarmið að ekki yrði haldið áfram viðræðum við ESB án þess að þjóðin vildi það . Hins vegar var deilt um hvað ætti að spyrja um og hvenær . Eins og staða málsins er núna er fráleitt að spurning um þjóðaratkvæðagreiðslu geti þvælst fyrir lyktum þess . Hinn 15 . júlí 2014 var gengið til atkvæða- greiðslu í ESB-þinginu um val á forseta framkvæmdastjórnar ESB sem tekur við völd um 1 . nóvember 2014 . Jean-Claude Juncker, fyrrv . forsætisráðherra Lúxem- borgar, var kjör inn . Í stefnuyfirlýsingu sem hann kynnti af þessu tilefni segir: „Að því er varðar stækkun geri ég mér fulla grein fyrir að við höfum náð sögulegum árangri, sem hefur tryggt álfu okkar frið og stöðugleika . Hins vegar verður sambandið og borgarar þess að melta 13 ríkja stækkun á síðustu 10 árum . Evrópusambandið þarf að gera hlé á stækkun svo að við getum fest í sessi það sem áunnist hefur með 28 ríkjum . Af þessum ástæðum verður, á meðan ég er í forsæti, aðildarviðræðum fram haldið, og einkum þurfa ríkin á vesturhluta Balkan- skaga að huga að evrópskri vídd, en engin frekari stækkun verður á næstu fimm árum (but no further enlargement will take place over the next five years) .“ Juncker vék sérstaklega að Balkanríkjun- um vegna þess að þar tengja menn að- lögun að kröfum ESB baráttunni fyrir lýðræðislegum stjórnarháttum og virðingu fyrir lögum og rétti og viðleitni til að tryggja frið í samskiptum þjóða og þjóðarbrota . Að fella Ísland undir ríki í viðræðum við ESB er í besta falli langsótt en í raun rangt þegar litið er til þess sem gerðist í jan úar 2013 og síðan eftir kosningarnar 2013 . Engar viðræður hafa farið fram frá ríkja- ráðstefnunni hinn 18 . desember 2012 . Við- ræðunefndir hafa verið aflagðar . Hið eina sem eftir stendur af umsóknarferlinu er Evrópustofa sem beitir sér fyrir kvik mynda- A llt frá upphafi hefur ESB-aðildar um sókn in valdið miklum deilum og klofið þjóð og flokka . Þessi ágreiningur náði há marki eftir að tillagan um afturköllun umsókn ar innar var kynnt . Hin ólíku sjónarmið er einfaldlega ekki unnt að sætta . Engin mála miðl un finnst milli þess að vera með eða á móti aðild að Evrópusambandinu . Tilraunir til sátta hafa snúist um aðferðina við töku ákvarð ana í málinu .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.