Þjóðmál - 01.09.2014, Qupperneq 46

Þjóðmál - 01.09.2014, Qupperneq 46
 Þjóðmál haust 2014 45 Frosti Bergsson, fyrrverandi stjórnar-formaður Opinna kerfa, sagði á Við- skipta þingi Verslunarráðs um íslenskt menntakerfi í febrúar 2001, að Íslendingar ættu að taka upp þá stefnu að verða tvítyngdir á íslensku og ensku . Ekki útskýrði Frosti nánar hvað hann átti við með tví tyngi en gera má ráð fyrir að hann hafi meint að auk móðurmálsins íslensku ættum við að stefna að því að ná það góðu valdi á ensku að við gætum talað hana reiprennandi og notað hana við fjölbreyttar aðstæður af öryggi . Frosti vísaði til ýmissa þjóða sem tekið hefðu stefnuna á tvítyngi og benti að auki á að þörfin væri brýn í heimi síaukinna alþjóðlegra viðskipta . Í kjölfar ummæla Frosta hófst mikil um- ræða í fjölmiðlum um þessar hugmyndir hans, aðallega þó í neikvæðari kantinum . Marg ir töldu að enskufærni Íslendinga væri stór lega ofmetin og því óraunhæft að stefna að tvítyngi . Aðrir lýstu áhyggjum sínum af örlögum íslenskunnar, að enskan myndi þá með tímanum ryðja móðurmálinu úr vegi . Í þessari grein er ætlun mín að leggja mat á kunnáttu okkar Íslendinga í ensku ásamt því að ræða hvort markmið Frosta séu raunhæf . En þar sem hugmyndir Frosta eru afar stórtækar og metnaðarfullar er rétt að verja talsverðum hluta greinarinnar í umfjöllun um fáein mikilvæg hugtök og nokkrar þýðingarmiklar rannsóknir fræði- manna og kennara á sviði enskrar mál- notkunar og hagnýtra málvísinda . Ílag Tileinkun annars tungumáls er flókið og hægfara ferli . Ótal breytur koma inn í myndina svo sem færni í móðurmáli, sjálfstraust, kennsluaðferðir, áhugahvöt, tæki færi til notkunar tungumálsins við raun verulegar aðstæður og þar fram eftir götu num . Ein breyta vegur þó allra þyngst en það er ílag (e . input) . Því meira sem ílag- ið er í málumhverfinu því betur og hraðar tileinkar fólk sér tungumálið . En hvað er ílag? Ílag er hvers kyns skilaboð sem þú heyr- ir eða lest á viðkomandi tungumáli í merk- ing ar bæru samhengi . Með merkingarbæru sam hengi er átt við að þú hafir áhuga á að meðtaka viðkomandi skilaboð og að þau séu sett fram á skiljanlegan hátt miðað við færni þína í tungumálinu á hverjum tíma . Tökum dæmi af einstaklingi sem er skammt á veg kominn í enskunámi sínu . Fyrir honum fæli lestur á bresku dagblaði ekki í sér ílag . Ástæðan er sú að þótt blaðið innihaldi mikið magn af ensku er hún of Guðmundur Edgarsson Staða enskunnar á Íslandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.