Þjóðmál - 01.09.2014, Síða 94

Þjóðmál - 01.09.2014, Síða 94
 Þjóðmál haust 2014 93 spillta stjórnmálaflokka sem innleiddu kerfis- og lagabreytingar sem lögðu Ísland í rúst; skammast sín fyrir að hafa látið glepjast af öllu lánsfénu sem landið fyllt ist af; skammast sín fyrir að hafa gert pen inga að hin um æðstu gæð um með því að hafa mark aðs vætt flest svið sam félags ins; skamm- ast sín fyrir að hafa afhent lykl ana að þjóðfélaginu til hóps manna sem hafði sér það eitt til ágætis að eiga pen inga, og skammast sín fyrir að hafa verið viljugir við hlæjendur þeirra . Þessi skömm er mikilvæg fyrir þá „endursköpun“ á „sjálfs- mynd“ þjóðarinnar sem þarf að fara fram .“ (Bls . 258 .) Ingi Freyr vill ekki tala um bankahrun held ur „sam félagshrun eða kerfis- hrun“ . Bókin Ham skiptin er skrifuð í anda heimsó sómakvæðanna á öldum áður . Með henni hvetur höfundur- inn þjóðina til dáða með því að skamma hana og segja henni til syndanna . Draga má í efa að það sé skynsamlegasta leiðin til að snúa þróun mála til betri vegar . Í tilvitnaða textanum gætir gamal kunn- ugrar minnimáttarkenndar um að Íslend- ingar hafi orðið sér til skammar á alþjóða- vettvangi . Höfundur lætur þess hins vegar hvergi getið hve margir hafa borið lof á viðbrögð vegna gjaldþrots bankanna . Kenning Inga Freys er að Ronald Reagan og Margaret Thatcher og „nýfrjálshyggja“ þeirra hafi mótað stefnu ríkisstjórna Íslands frá 1995 . Hann nafngreinir hins vegar ekki á Bill Clinton þegar hann nefnir þá staðreynd að í forsetatíð hans samþykkti Bandaríkjaþing (1999) að afmá skilin milli viðskiptabanka og fjárfestingarbanka . Engin ein pólitísk aðgerð hefur í seinni tíð kallað meiri óvissu yfir bankastarfsemi og áhættu- fíkn innan bankakerfisins . Ég sat á þingi frá 1991 til 2009 og í ríkisstjórn með stuttu hléi frá 1995 til 2009 . Vilji menn finna eitthvað eitt sem olli þáttaskilum í stjórn landsins á þessum árum var það aðild Íslands að evrópska efnahagssvæðinu (EES), fyrir 20 árum, 1 . janúar 1994 . Ingi Freyr skautar fram hjá EES- samningnum sem skýr- ingu á gjörbreytingu á íslensku viðskiptalífi eftir að fjórfrelsið svonefnda kom til sögunnar . Margir sósíalistar lýsa lög um og reglum innri mark aðs Evrópusam- bands ins og þar með EES á þann veg að með þeim sé innleidd frjálshyggja ef ekki nýf rjáls hyggja . Má benda á bækur og rit gerðir þessu til stuðnings . Deilurnar á evru-svæðinu undanfarin ár hafa snúist um hvort bregðast ætti við kreppu með því að draga úr ríkisútgjöldum og minnka umsvif hins opinbera (frjálshyggja) eða auka útgjöldin og hið opinbera láti meira að sér kveða í atvinnumálum (ríkisafskipti) . Sósíalistar kenna þá leið sem farin hefur verið undir forystu Angelu Merkel Þýska- landskanslara við frjálshyggju . Franskir sósíalistar segjast ekki lengur ætla að virða kröfur ESB um að hallinn á ríkissjóði sé innan við 3% af vergri landsframleiðslu . Þeir ætli að láta atvinnustigið ráða og til að fjölga störfum verði að nota skattfé almennings, auka hallann á ríkissjóði en ekki minnka hann . Ingi Freyr Vilhjálmsson minnist hvergi á áhrif EES-aðildar á íslenskt þjóðfélag og stjórnmálalíf landsins . Að hann hlaupi yfir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.