Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Síða 72
á að í augum margs ungs fólks nú á dögum séu trúarbrögð ófullnægjandi
uppspretta þess að trúa og tilheyra og rannsóknir hennar benda til að ungt
fólk snúi sér fremur að fjölskyldu, vinum og öðrum félagslegum tengslum,
sem fullgildum og fullnægjandi vettvangi til að staðsetja og móta trú,
stuðning og hið yfirskilvitlega.38
Líklega á allt ofangreint að einhverju marki við um ungt fólk á Islandi.
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í spurningalistakönnuninni nefndu trúar-
brögð eða trúfélag sem þau tilheyrðu en á sama tíma töldu mörg þeirra
hvorki að trúarleg iðkun hefði þýðingu íyrir þau, né að trúarbrögð hefðu
haft mikil áhrif á viðhorf þeirra eða líf. Um leið telja flest að manneskjan
þurfi alltaf eitthvað til að trúa á. Trúarbrögð eru að mati meirihlutans ekki
mikilvæg í samfélaginu en hins vegar virðist tiltrú á vísindum vera meiri en
á trúarkenningum. Felur þetta í sér að þau trúi án þess að tilheyra, þ.e. að
þau trúi á sinn hátt án þess að vera í raunverulegu sambandi við trúfélagið
eða trúarbrögðin sem þau sögðust tilheyra? Eða er það svo að um þau gildi
að hvorki trú né tilfinningin fyrir að tilheyra tilteknum trúarbrögðum eða
trúarhefð hafi yfirfærst til þeirra frá fyrri kynslóð og að þau, þar af leiðandi,
hvorki trúi né tilheyri í raun þeim trúarbrögðum eða trúfélagi sem þau
tilgreindu í rannsókninni? Til að fá svör við þessu þarf að afla frekari gagna
með samtölum í rýnihópum. í viðbrögðum við fullyrðingum sem ekki eru
sérstaklega tekin til umfjöllunar í þessari grein eru vísbendingar um mikil-
vægi fjölskyldunnar í mótun viðhorfa umfram vini og að trúnaðarsamband
í fjölskyldunni sé mikilvægara en trúnaðarsamband við vini. Vinirnir eru
þrátt fyrir það mikilvægir í augum langflestra og þeir eru eitt af því sem
veitir öryggi. I vinahópnum ríkir samvinna og hjálpsemi og óttinn við að
tapa trúnaði vina er lítill hjá flestum. Felur þetta í sér að þau trúi á að
tilheyra og að fjölskylda og vinir séu bæði fullgildur og fullnægjandi vett-
vangur fyrir mótun viðhorfa og trúar í stað kirkju og trúfélaga?
Trúarbrögð hafa þrátt fyrir þetta, og þrátt fyrir kenningar um veraldar-
væðingu samfélagsins, ekki horfið úr samfélaginu39 og því má velta fyrir sér
hvaða áhrif aukin trúarlegur margbreytileiki og fjölhyggja, ásamt umræðu
um áhrif margbreytileika og fjölhyggju í samfélaginu og lífi fólks,40 hefur á
ungt fólk á íslandi. Niðurstöður í þessum þætti rannsóknarinnar sýna að það
gerir sér grein fyrir vaxandi trúarlegum margbreytileika í íslensku samfélagi
38 Day 2009, 2011.
39 Berger 1999; Woodhead og Heelas 2000.
40 Berger og Luckman 1995; Skeie 2002b.
70