Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Side 145
discordantium canonum, en ýmist kallað Nova collectio, Decreta, Corpus
Juris Canonici eða Decretum Gratiani. Það má geta þess að það var einmitt
í Bologna sem eitt eintak af Corpus Juris Civilis sýndi sig að vera til. Með
Corpus Juris Canonici er aftur á móti ekki verið að gefa út almenn (civil)
lög heldur sérstök lög fyrir kirkjuna (canon). Rit Gratians hlaut þó ekki
viðurkenningu sem kirkjulög, ýmsir áttu eftir að koma að verkinu og það
var ekki fýrr en um 1500 að verkinu telst lokið, en síðan gildir Corpus Juris
Canonici sem lögbók kaþólsku kirkjunnar allar götur fram til 1918.
Strax á 12. öld byrja fræðimenn að glósa afrit af Corpus Juris Canonici
og jafnskjótt og prentun er fundin upp er farið að prenta bókina, oft með
þessum glósum. Þetta líta margir á sem fyrsta vísinn að lögfræðilegu fræði-
starfi nútímans.
Hvað með hefnd í þessari bók? Því er fljótsvarað, hún finnst ekki. En þar
er slegið föstu að boðorðin 10 séu bindandi samkvæmt boði Páls postula.
Það þýðir væntanlega að hefndardráp eru eins og hver annar glæpur, en því
önsuðu fáir í vaidastétt. Corpus Juris Canonici er mjög í anda Corpus Juris
Civilis og Rómaréttar þó ekki fari á milli mála að hér er kristin lögbók á
ferðinni (Corpus Juris Canonici BOOK II51).
Upphaf nútímalaga
En gera verður grein fyrir því, að miðað við elstu tíma er töluverður afstöðu-
munur á endurgjaldslögum, þessum miðaldalögum og svo aftur nútímalögum.
Skýrasta dæmið er foráttuglæpir sem krefjast hámarksrefsingar, svo sem morð.
I upphaflegum hefndarrétti skal refsingin falla á fjölskyldu sakamannsins, það
er jafnvel enn meiri refsing að drepa son hans en hann sjálfann svo dæmi sé
tekið55. I endurgjaldslögum, sem gyðingdómur byggist á, er sú veigamikla
breyting að nú skal refsingin falla á þann seka og hann skal lífláta (t.d. Fjórða
Mósebók 35:9). Rómverskur réttur, og síðar germanskur réttur, sem byggja
á hefndarrétti með einhverju ívafi frá endurgjaldslögum, leyfa sáttargjörð
með fébótum. Þetta er fortakslaust bannað í nútímalögum, þar getur enginn
keypt sig frá hámarksrefsingu með sektum eða fébótum. Þar er nútímaréttur
kominn nær gyðingdómi en miðaldaréttur var.56
55 Það má jafnvel skilja Sonatorrek þannig, að versta hugarvíl Egils sé ekki sonamissirinn heldur
það að geta ekki komið fram hefndum á hafinu sem tók annann sona hans.
56 Að þessu marki fór Evrópa þá lengstu braut sem hægt var að fara, þegar hún nánast enduruppgötvaði
sína eigin fortíð í þýðingum Gerardus Cremonensis á 87 arabískum handritum sem fundust í
bókasöfnum íToledo á Spáni á 12. öld. Þarna kynntist hinn vestræni heimur Sókratesi, Platoni,
143
L