Orð og tunga - 01.06.1990, Qupperneq 49

Orð og tunga - 01.06.1990, Qupperneq 49
Jón Hilmar Jónsson: Að snúa orðum á íslensku 27 styrk þess til að taka hverri áskorun og leysa hvern tjáningarvanda. Skýrt dæmi um þessa afstöðu er orðabók sú sem kennd er við Jónas Jónasson frá Hrafnagili og út kom undir heitinu Ný dönsk orðabók með íslenskum þýðingum árið 1896. Sama gildir um dansk-íslenska orðabók Freysteins Gunnarssonar sem út kom 1926, enda er þar um að ræða aukna og breytta útgáfu á orðabók Jónasar. Ummæli Björns Jónssonar í formála að orðabók Jónasar eru vitnisburður um þetta: En er til hinna íslenzku þýðinga kemr, þá hefir þar verið kostað allmjög kapps um, að hafa þær bæði fjölbreytilegar og vandaðar. Því það er að vorum dómi mestr kostr orðabókar, að þangað verði sem sjaldnast í geitarhús farið ullar að leita, er snúa skal hinni útlendu tungu orði til orðs snjallt og rétt á móðurmál sitt. Hins þarfnast miklu færi, að leita stuðnings orðabókar til að fræðast um, hver hugmynd felist í því og því útlendu orði; það er gott íslenzkt heiti á hlutunum eða hugmyndunum, er þá vanhagar um. ... ... hafa þeir, sem að endrskoðun handritsins hafa unnið, búið til æði-mikið af nýyrðum, ýmist um það, sem ekkert íslenzkt heiti hefir áður haft, eða þá ekki nema mjög léleg eða lítt hæf, að dómi höf- undanna. Þótti oss meðal annars brýna nauðsyn til bera, að bæta úr þeim megin-annmarka á bók K.G., að þar er svo afar-víða hinum útlendu orðum ekkert íslenzkt heiti valið, heldr að eins skýrt frá því með mörgum orðum, stundum langri lýsingu, hvað við sé átt með því eða því orði. (Björn Jónsson 1896: IV-V) En orðabækurnar sjálfar tala skýrustu máli. Ljóst er að þessar tvær bækur eru ekki svo mjög samdar með það fyrir augum að danska sé athugunarmálið, notkunareinkennum dönsku orðanna eru gerð lítil skil, notkunardæmi eru frem- ur fá og áhersla er lögð á orðafjölda umfram ítarleika í lýsingu hvers fyrir sig. Og ekki eru þær sniðnar að þörfum þeirra sem nálgast vilja íslensku sem erlent tungumál með stuðningi dönsku orðanna, því ekkert er til leiðsagnar um notagildi og merkingarafmörkun einstakra þýðingarorða sem oft eru mörg saman gagnvart dönsku orði. Greinilegt er að bækurnar höfða fyrst og fremst til Islendinga sem hafa íslenskuna að athugunarmáli og þá einkum þeirra sem hafa góð tök á að nýta sér dönskuna sem stuðningsmál við þá athugun. Segja má að metnaður þessara tveggja verka sé fólginn í því að sýna fram á hvers íslenskur orðaforði og íslensk orðmyndun sé megnug andspænis dönsku. Þetta kemur m.a. fram í því að sjaldnast er skorast undan því að þýða beint og er þá stundum teygt á íslenskri orðmyndun í því skyni að ná fram sambærileika við danska myndun. Eg tek sem dæmi að í orðabók Freysteins Gunnarssonar eru þýðingarorðin við orðið forag- ter „fyrirlítari“ („fyrirlítandi“ í orðabók Jónasar) og „smánari11. Orðið henvej er þýtt með „þangaðleið“ í báðum bókunum og aabenhed m.a. með „opinleikur". I orðabók Konráðs Gíslasonar er gætt mikillar varúðar í þessu efni. Foragter fær þýðinguna „sá sem fyrirlítur e-ð“, henvej er skýrt með „leiðin þangað, leiðin að heiman“, og fyrsti skýringarliðurinn við aabenhed er „það að vera opinn (götótt- ur, gisinn)“. I sænsk-íslenskri orðabók Gösta Holms og Aðalsteins Davíðssonar er iðulega látið nægja að tilgreina myndunarviðskeyti óhlutstæðs sagnarnafnorðs
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Orð og tunga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.