Orð og tunga - 01.06.1990, Page 50

Orð og tunga - 01.06.1990, Page 50
28 Orð og tunga við uppflettimynd sagnarinnar þegar svo háttar til að ekki er um hliðstætt nafn- orð í íslensku að ræða og reyndar bent sérstaklega á mun málanna tveggja að þessu leyti í leiðbeiningum bókarinnar. Tilhneiging til að ná fram sambærileika við orðið sem þýtt er kallar út af fyrir sig ekki á fjölorða þýðingar og samheitanotkun nema síður sé, sambærileikinn væri fyrst fullkominn með einu hnitmiðuðu þýðingarorði. Þegar um sérfræðilegan orðaforða er að ræða er reyndar keppikefli að ná fram slíkri hnitmiðun, en þegar fengist er við hinn almennari orðaforða eru nýmyndanir sem kvikna af erlenda orðinu miklu oftar í hópi annarra þýðingarorða, sem eins konar ábending um að erlenda orðið standist ekki fullkomlega á við neitt þýðingarorðanna, jafnvel með það í huga að forðast beri samhverfu við fastmótuð orð og betur geti farið á því að tjá hugtakið með nýju eða óbundnara orði. Áhrif á íslenska orðabókahefð Erlend-íslenskar orðabækur og orðasöfn eru mikið kjörlendi íslenskra nýyrða og samheita. Og sú hefð sem mótast hefur við gerð slíkra bóka hefur haft veruleg áhrif á íslenska orðabókagerð almennt. I fyrstu íslensku eins máls orðabókinni, Orðabók Menningarsjóðs, sem fyrst kom út árið 1963 og í nýrri útgáfu árið 1983, draga orðaskýringar mjög dám af þessari hefð, samheitaskýringar eru ráðandi og víða seilst til nýrra og nýstárlegra orða í skýringum á kostnað skilgreininga og nákvæmrar afmörkunar (sjá Jón Hilmar Jónsson 1985a). Það er svo annað athugunarefni hversu mikið er um uppflettiorð í bókinni sem eiga tilvist sína að þakka þýðingu á erlendu orði. Auðveldara er að koma auga á slík orð í orðabók Sigfúsar Blöndals sem m.a. hefur að geyma fjölda orða sem þaðan voru tekin upp í orðabók Freysteins Gunnarssonar. Bein áhrif erlend-íslenskra orðabóka eru enn greinilegri í Islenskri samheita- orðabók frá 1985. Samkvæmt formála hennar er önnur meginheimildin Dönsk orðabók Freysteins Gunnarssonar enda eru áhrifin þaðan auðsæ, bæði að því er varðar orðaval og samheitatengsl. Þar hafa mörg orð, sem í upphafi komu fram sem þýðingarorð, varpað því gervi af sér og stigið fæti sínum inn í alís- lenskt orðabókarumhverfi þar sem þau samlagast öðrum og rótgrónari orðum. Að þessu leyti eru erlend-íslenskar orðabækur eins konar uppeldisstöð fyrir ís- lensk nýyrði og samheiti sem grípa má til þegar þörf krefur og reyna má að koma til frekari þroska með því að marka þeim stöðu í alíslenskum orðabókum. Lokaorð Eg hef í þessu spjalli reynt að varpa ofurlitlu ljósi á íslenskar orðabókaþýðingar og þá hefð sem íslensk orðabókagerð býr að í því sambandi. Eg hef sérstaklega staldrað við gildi þýðinganna að því er varðar hlut þeirra að eflingu íslensks orða- forða og örvun orðmyndunar. I ljósi þýðinganna hafa menn virt fyrir sér og metið stöðu íslensks máls gagnvart erlendum málum og áhrifum þeirra. I viðbrögðum orðaforðans við þýðingaráskorun fléttast saman viðleitni til að ná fram hnitmið- un og endurspeglun annars vegar og að gera grein fyrir sérstöðu og ósambærileika hins vegar þannig að oft gætir hvors tveggja við þýðingu á einstökum orðum.

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.