Orð og tunga - 01.06.1990, Qupperneq 56

Orð og tunga - 01.06.1990, Qupperneq 56
34 Orð og tunga í þessum orðum Baldurs eru einkum tvö atriði sem ég vil leggja áherslu á og skipta máli þegar starf orðanefndar Skýrslutæknifélagsins er skoðað. I fyrsta lagi er það alveg ljóst að meginþorri Islendinga vill ekki gefast upp og tala ensku þegar rætt er um tölvur því þá er stutt í að við töpum tungu forfeðra okkar alveg. I öðru lagi er vert að gera sér grein fyrir því að ekki er verið að tala um að búa til nýtt mál. Oft heyrist sú gagnrýni að íslenskur texti um tilteknar fræðigreinar, t.d. tölvutækni, stærðfræði og eðlisfræði, sé óskiljanlegur venjulegu fólki. Þá gleymist að samsvarandi enskur texti er jafnóskiljanlegur „venjulegu“ enskumælandi fólki einfaldlega vegna þess að það þekkir ekki fræðin sem fjallað er um. Eg vil fá að skrifa og tala um mínar fræðigreinar á íslensku þótt mér sé fullkomlega ljóst að mjög margir Islendingar skilji ekki það sem ég er að fjalla um. Eg hef t.d. nýlega lagt síðustu hönd á orðasafn úr tölfræði ásamt þremur félögum mínum. Þar fylgja íslenskar skilgreiningar flestum hugtökum og ég er sannfærð um að t.d. velgreindur sonur minn sem er menntaskólanemi á 18. ári skilur harla lítið í þeim. Hann myndi hins vegar hafa gagn af þeim ef hann færi að læra tölfræði í Háskóla Islands eftir nokkur ár. Gerðar eru margar og ólíkar kröfur til íðorða svo að þau geti talist frambæri- leg. Þessar kröfur eru oft gagnstæðar og erfitt að fullnægja þeim öllum. Síðan verður að taka til greina að smekkur manna er ólíkur; það sem einum finnst vont finnst öðrum gott. Ogerlegt er að átta sig á því hvaða orð muni hljóta náð hjá þeim sem eiga að nota þau. Sú krafa til íðorða, sem er einna háværust, er sú að þau eigi að vera gegnsæ. En þau eiga einnig að vera stutt og auðlærð. Þegar ráðist er í að gefa einhverju hugtaki heiti þarf því fyrst að átta sig á því hversu algengt það er. Hugtök sem fáir nota og sjaldan eins og t.d. það sem á ensku heitir closed user group with outgoing access má vel heita á íslensku lokaður notendahópur með úttengileið. I ensku þykir ekki taka því að gefa þessu fyrirbæri sérstakt nafn heldur er í raun notuð lýsing sem er búin til úr sex orðum. Þessi lýsing var einfaldlega þýdd á íslensku. Margyrta íðorðið lokaður notenda- hópur með úttengileið lýsir fyrirbærinu en er óneitanlega langt. Annað dæmi um margyrt íðorð er directed acyclic graph sem í Tölvuorðasafni heitir örvótt net án hringbrauta. Hugtök sem margir nota og oft þurfa hins vegar öðruvísi heiti. Þau þurfa að vera stutt og þjál í munni. Ekki er nauðsynlegt að þau séu sérstaklega gegnsæ þó að æskilegt sé að einhverja skírskotun til merkingar megi finna. Iðorð sem fá mikla útbreiðslu verða gegnsæ af sjálfu sér. Mér finnst t.d. að orðið sírrii sé eitthvert besta dæmið um ógegnsætt íðorð. Snorri Sturluson yrði áreiðanlega hissa ef liann sæi orð eins og símaskrá, símstöð og ég tala nú ekki um símvirki. Orðið sími er skiljanlegt venjulegu íslensku nútímafólki vegna þess að það lærði að þetta tæki heitir sími rétt eins og stóll heitir stóll en ekki kanna. Ekki tengja börnin okkar símann við neinn þráð. Segja má að orðið tölva hafi lilotið sömu örlög. Allir vita að orðið tölva er heiti á tilteknu tæki án þess að menn tengi það beinlínis neinni talnavísi. Hugtökin í þessum flokki eru einnig oft grundvallarhugtök og heiti þeirra þurfa að vera þannig að auðvelt sé að mynda af þeim afleidd orð og samsetningar. Oft þarf líka að hafa í huga stöðu hugtaka í liugtakakerfinu þegar þeim eru valin heiti. Lokaður notendahópur með úttengileið er t.d. undirhugtak lokaðs notendahóps. Þegar hugtaki, sem á ensku heitir hard copy, er gefið íslenskt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Orð og tunga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.