Orð og tunga - 01.06.1990, Síða 94
72
Orð og tunga
Að baki þýðingatextunum eru geysilega umfangsmikil forrit sem mikill fjöldi
forritara hefur unnið að. Einstök forrit geta verið 5-10 sinnum stærri í línum
talið en sá þýðingatexti sem þau eiga við. Stærstu kerfin sem þýdd hafa verið
hérlendis eru gerð úr forritum sem eru um og yfir milljón línur að lengd, og
þúsundir manna hafa unnið að gerð þeirra.
Er líður að því að fyrsti hluti nýs texta sé afhentur til þýðinga upphefst nokk-
ur eftirvænting og viðbúnaður í herbúðum þýðenda. Stundum er eldri verkefnum
ekki alveg lokið og verður þá að gera gangskör að því að ljúka þeim, ganga frá
gögnum til sendingar til framleiðenda og gera þau aðgengileg til síðari nota. Þá
þarf að taka til á diskum tölvanna, rýma til fyrir nýjum gögnum.
Venjan er að þýðingastöð fái sendan orðalista með mikilvægustu liugtökum í
textanum áður en textinn berst í samfelldu máli. Orðalistanum fylgja skýringar
svo að hægt er að hefjast handa við þýðingar á einstölcum orðum og ryðja þar
með brautina fyrir þýðinguna á sjálfum textanum.
Loks kemur textinn og þá er tekið til við hið eiginlega þýðingarstarf. Textinn
kemur jafnan í nokkrum hlutum eða sendingum á þýðingartímanum. Er þá ekki
aðeins um að ræða viðbætur heldur geta einnig komið fram breytingar á texta
sem búið er að þýða. Því getur þurft að endurskoða fyrri þýðingu og fella nýja
búta að því sem eldra er.
Með vissu millibili athuga framleiðendur hvernig þýðingum miðar og hvort
áætlanir standist. IBM hefur þá venju að markaðssetja vöru sína í beinu fram-
kaldi af sérstakri frumkynningu þar sem varan er sýnd almenningi í fyrsta sinn.
Slík frumkynning er undirbúin með góðum fyrirvara og verða þýðingastöðvarnar
að taka mið af því.
Að þýðingu lokinni þarf að byggja forritið, en í því felst að steypa saman
hinu upphaflega forriti framleiðandans og þýðingartextanum. Þetta verk annast
kerfisfræðingar og fer það yfirleitt fram á rannsóknarstofu, en fyrir kemur að
þýðingastöðvunum er falið að sjá um byggingu forrita. T.d. fól rannsóknarstofan
í Rochester þýðingastöðvunum að byggja forritin í AS/400 tölvunni. Það verk
tók u.þ.b. viku fyrir fyrstu útgáfu með því að unnið var dag og nótt.
Þegar byggingu lýkur er framleiðslunni komið fyrir í sínu endanlega geymslu-
formi, á segulbandi eða seguldiski. SPC í Kaupmannahöfn sér um framleiðslu
og pökkun fyrir IBM á Islandi. Einn pakki er sendur til Islands til prófunar og
kerfið sett upp einu sinni enn. Nú ríður á að allt sé rétt, að þýðing og bygging
hafi tekist vel. Sé svo má gefa SPC grænt ljós um fjöldaframleiðslu.
6 SAA skrifstofukerfm
Hjá IBM á íslandi hefur einkum verið lögð áhersla á að þýða fyrir almenna tölvu-
notendur, sem eiga það sammerkt með ökumönnum að þeir skyggnast sjaldan
undir vélarhlífina. Til þess eru kerfisfræðingar, forritarar, tölvunarfræðingar og
tæknimenn. Svo að líkingunni við farartækin sé haldið kynnast notendur ólíkum
tölvugerðum á líkan hátt og sumir venjast því að aka vélhjólum, aðrir fólksbif-
reiðum, enn aðrir strætisvögnum o.s.frv.