Ráðunautafundur - 20.02.1996, Page 149
141
og smjörsýrugerlum, sem og kólígerlum, sé notuð vatnsblönduð mykja. Við forþurrkun heys-
ins og aðra meðferð þess á velli fjölgaði örverum í heyinu, einkum mjóikursýrugerlum og.
gróum próteinsundrandi smjörsýrugerla. Varð fjölgunin meiri í tadda heyinu en hinu sem
aðeins fékk tilbúinn áburð. Þennan mun mátti síðan greina í votheyinu fullverkuðu án þess að
fram kæmi teljandi munur á árangri verkunar heysins mældum í fóðurgildi þess né heldur
fóðrunarvirði sem mælt var með gemlingum.
I heild var örveruflóra heysins sem aðeins fékk tilbúinn áburð ívið hagstæðari með
hliðsjón af gerjun en hins sem fékk búfjáráburðinn. Munurinn var þó það smár að auðvelt
virðist að ná viðunandi verkun heysins þótt borinn hafi verið skítur á túnið - aðeins ef vel er
vandað til vinnubragða við heyskapinn og hæfileg forþurrkun heysins viðhöfð.
LOKAORÐ
Kröfur um afurðagæði vaxa nú hröðum skrefum. Sem dæmi um það má nefna að þann 1. júlí
1995 tóku Svíar að fella í verði mjólk sem úr hófi er menguð gróum (Clostridia -
smjörsýrugerla - og Bacillus cereus). I forathugun veturinn 1994-95 reyndist tíunda hvert
kúabú falla í þann flokk hjá afurðastöðvum Arla-samlagsins (Sönnergren 1995).
Metnaður íslensks mjólkuriðnaðar er mikill. Leggja þarf kapp á að kanna hvað raskað
getur hreinleika afurðanna og miðla þekkingu um það. Hollusta fóðursins ræður þar miklu
(Bjarni Guðmundsson o.fl. 1991, Malmquist og Spörndly 1993). Nauðsynlegt er því að halda
áfram þeim athugunum sem hér hefur verið greint frá. Rannsaka þarf nánar áhrif búfjáráburðar
á gæði votheys og kanna þá betur áhrif tíma og tækni við dreifingu hans, áhrif heyskaparhátta
og hvort munur muni vera á milli bæja og byggðarlaga í þessu efni og fleira. Með hliðsjón af
notkun gerlasmits við votheysgerð, sem nú er mikill áhugi á (sjá t.d. Merry o.fl. 1995), þarf
einnig að afla fyllri gagna um fjölda og tegundir mjólkursýrugerla á grasi og heyi við hirðingu
þess til votheysgerðar.
HEIMILDIR
Bjarni Guðmundsson, Aðalsteinn Geirsson og Sigtryggur J. Björnsson 1991. Gerjun heys og gæði mjólkur.
Freyr, 87(21 ):850-853.
Bjarni Guðmundsson og Aðalsteinn Geirsson 1995. Áhrit'túnteðslu á örveruílóru grasa og verkun votheys úr
þeim. Rit Búvísindadeildar, nr. 11, 18 bls.
Johnson, U. 1991. Faktorer som inverkar pá sporinnehállet i mjölk samt dess inverkan pá mejeriprodukternas
kvalitet. NJF-seminarium nr. 201, Ensilering i rundballer, Hveragerði, 24.-25. okt. 1991.
Guðmundur Bjarnason 1993. Frjálsa glaða /i7(æviminningar). Jarðtæknistofan hf., Reykjavík, 222 bls.