Morgunblaðið - 01.12.2017, Page 48
48 Jólablað Morgunblaðsins
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Flott jólaföt, fyrir flottar konur
Str.
38-58
Ístertur eru í miklu uppáhaldi hjá
undirritaðri. Það er einhvers konar
blanda af ást á rjómaís og marens-
tertum en í alvöru heimagerðum ís-
tertum er hægt að blanda þessu
tvennu saman. Það er líka um að
gera að blanda því saman sem manni
þykir gott. Þú gætir til dæmis sett
hindberjaísinn ofan í kókósbotninn
og súkkulaðið eða öfugt. Bragðskyn
fólks er nefnilega misjafnt og ef fólk
er með ákveðinn uppskriftargrunn
er svo auðvelt að leika sér með rest-
ina. Eldhúsið á alls ekki að vera
staður þar sem einhver er hlekkj-
aður við eldhústæki heldur eigum
við að leika okkur í eldhúsinu, skapa
og búa til eitthvað nýtt. Gera okkar
útgáfur af lífsins réttum.
Botn
3 eggjahvítur
50 g púðursykur
100 g möndlur sem búnar eru að
fara nokkra hringi í blandaranum
1 tsk lyftiduft
1 tsk eplaedik
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og
sykrinum bætt út í. Þegar deigið er
orðið stíft og flott er möndlukurli,
lyftidufti og eplaediki bætt út í. Setj-
ið deigið í smelluform og notið endi-
lega bökunarpappír því þá er þægi-
legra að koma ístertunni saman.
Botninn er bakaður við 150 gráður
í 40 mínútur.
Hindberjaís
3 eggjarauður
50 g púðursykur
3 dl þeyttur rjómi
150 g frosin hindber
Þeytið rjómann og setjið til hliðar.
Þá næst eru eggjarauður þeyttar vel
saman ásamt púðursykri. Þegar
blandan er orðin ljós og létt er rjóm-
anum bætt út í og hrært varlega
saman við. Í lokin er frosnu hind-
berjunum bætt út í rjómann.
Þegar botninn er orðinn kaldur og
ísinn klár er ísinn settur ofan á botn-
inn í smelluforminu og hann settur
inn í frysti. Það tekur í kringum átta
klukkutíma að láta ísinn frjósa al-
mennilega en þá er hann líka tilbú-
inn á borðið.
Hindberjaísterta
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hindberjaísterta er bæði falleg
á veisluborði og líka svona
óskaplega góð á bragðið.
Þessi kaka gæti líka heitið hefð-
bundin kókoskaka en undirrituð
ákvað að breyta henni í ístertu með
örlitlu tvisti. Með því að bæta heima-
gerðum vanilluís ofan á kökuna og
kremið á gerast töfrar sem koma
manni ekki bara í gott jólaskap held-
ur bara í stemningu fyrir lífinu.
Botn
4 eggjahvítur
140 g flórsykur
140 g kókosmjöl
Stífþeytið eggjahvítur og bætið
svo flórsykri saman við. Þegar deig-
ið er orðið vel stíft og flott er kók-
osmjöli blandað saman við. Deigið
sett í smelluform með bökunar-
pappír. Stillið ofninn á 150 gráður og
bakið í 40 mínútur.
Krem
100 g smjör
100 g suðusúkkulaði
100 g flórsykur
4 eggjarauður
Bræðið smjör og suðusúkkulaði
saman í potti. Þeytið eggjarauð-
urnar vel saman. Þegar súkkulaði-
bráðin er tilbúin er henni hellt var-
lega út í eggjarauðurnar og í lokin er
flórsykurinn þeyttur saman við.
Vanilluís
3 eggjarauður
50 g púðursykur
1-2 tsk vanilluduft
3 dl þeyttur rjómi
Þeytið rjómann og setjið til hliðar.
Þá eru eggjarauðurnar þeyttar mjög
vel ásamt púðursykri og vanilludufti
bætt út í. Þegar blandan er orðin
mjúk og áferðarfalleg er rjómanum
bætt í.
Nú hefst púsluspilið.
Takið botninn, sem er ennþá í
smelluforminu, og hellið súkku-
laðikreminu yfir hann. Þegar það er
búið er gott að setja formið í nokkr-
ar mínútur inn í frysti. Þegar formið
er komið úr frystinum er vanillu-
ísinn settur yfir. Gott er að láta ís-
tertuna vera í allavega átta klukku-
tíma inni í fyrsti áður en hún er
borin fram.
Kókosísterta
Kókósísterta með
vanilluís er ljúffeng.