Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2016, Side 13
12
Þar sem einn helsti orsakavaldur hnattrænnar hlýnunar er jarðefna-
eldsneyti5 – og þar af leiðandi augljóst að það þarf að draga verulega úr
brennslu þess næstu árin svo hlýnun fari ekki upp fyrir 2°C mörkin –
myndi maður ætla að flestum kæmi spánskt fyrir sjónir að íslensk yfirvöld
hafi gefið út þrjú sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass)
á Drekasvæðinu árin 2013 og 2014. Olíuævintýri íslenskra stjórnvalda er
rétt að hefjast þegar við erum aðeins 500 billjón kolefnistonnum frá því
að ná 2°C mörkunum, en áætlað er að við náum þeim losunarmörkum á
um það bil 30 árum á núverandi hraða útblásturs.6 Þetta þýðir sömuleiðis
að við getum aðeins brennt litlum hluta þess kolefnis sem okkur stendur
til boða á heimsvísu, en fyrir fimm árum voru það „um það bil 2800 gíga-
tonn – fimm sinnum það magn sem flestar íhaldssömustu ríkisstjórnir og
vísindamenn jarðar segja óhætt að brenna.“7
Opinberar umræður um þessar óþægilegu staðreyndir virðast ekki
breyta nokkru um afstöðu stjórnvalda í málinu, eins og ljóst var eftir heim-
sókn Bill McKibben, umhverfissinna og stofnanda alþjóðlegu grasrótar-
hreyfingarinnar 350.org, til landsins í maí 2013. Eftir að hafa haldið fyr-
irlestur við Háskóla Íslands, kom McKibben fram í fréttaviðtali við Stöð 2
og bað íslensku þjóðina um að sleppa því að leita að olíu:
Heimurinn hefur enga þörf fyrir meiri olíu, við eigum mun meira af
olíu og gasi og kolum en við getum brennt. Ef við ætlum nokkurn
tímann að gera eitthvað til að stöðva hnattræna hlýnun og hægja á
súrnun hafsins þá verðum við að skilja olíu eftir í jörðu. Íslendingar
gætu gert öllum stórkostlegan greiða með því að segja, „veistu hvað?
Það gæti verið að það sé olía þarna, en við skulum leyfa henni að
vera í jörðu, þar sem hún hefur verið í einhverjar milljónir ára.“ Það
mikilvægasta sem Íslendingar gætu gert væri að […] vera eins konar
fyrirmynd annarra í heiminum og þið hafið nú þegar byrjað á því.
Markmið um að hætta að nota jarðefnaeldsneyti á landinu er mjög
mikilvægt – að verða kolefnishlutlaus á einhverjum tímapunkti væri
afar jákvætt. En Ísland er auðvitað svo lítið að það mun ekki bjarga
5 R.K. Pachauri og L.A. Meyer, Climate Change 2014. Synthesis Report, bls. 46.
6 Bill McKibben, „It’s time to stop investing in the fossil fuel industry“, The
Guardian, 30. maí 2013, sótt 21. nóvember 2015: http://www.theguardian.com/
commentisfree/2013/may/30/fossil-fuel-divestment-climate-change. Tölurnar sem
McKibben gengur út frá í greininni frá 2013 eru frá 2009, en árleg losun hefur
aukist síðan þá.
7 Bill McKibben, „It’s time to stop investing in the fossil fuel industry“.
GUÐRúN ELSA BRAGADÓTTIR