Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2016, Blaðsíða 88
87
inn vísar til gagnrýni Marteins Lúthers á aflátssölu kaþólsku kirkjunnar
á 16. öldinni.48 Guðfræðileg og siðferðileg hugtök í brennidepli þess rits
eru sköpunarverk Guðs og ábyrgð manna gagnvart skapara sínum.49 Sex
árum fyrr eða árið 2009 gaf LH út umfangsmikið efni50 sem nefnist God,
Creation and Climate Change. Spiritual and Ethical Perspectives.51 Hluti þess
efnis hafði verið birtur áður þar sem tekin voru saman ýmis kjarnaatriði. Sá
hluti fékk heitið God, Creation and Climate Change. A Resource for Reflection
and Discussion52 og hyggst ég draga fram helstu atriði hans.53 Töluvert fer
fyrir gagnrýni á trúarlegar skýringar almennings á loftslagsbreytingunum
í upphafi bæklingins og varað við því að tengja loftslagsbreytingar reiði
Guðs eða dómi.54 Undirstrikað er að orsök loftslagsbreytinga sé af manna-
völdum og raktar til þess að mannkyn hafi ekki sýnt jörðinni tilhlýðilega
lotningu. Loftslagsbreytingar séu til komnar vegna syndar, vegna órétt-
látrar framkomu í garð sköpunarverksins, náungans og annarra lífvera.
Ákveðinni sjálfsgagnrýni er beint að lútherskri boðun sögulega sem sögð
er hafa vanrækt að lofa náttúruna sem handaverk Guðs. Klykkt er út með
48 Hápunktur aflátsdeilnanna var þegar Lúther festi 95 greinar gegn aflátssölunni á
dyr hallarkirkjunnar í Wittenberg 31. október 1517. Gunnar Kristjánsson, Mar-
teinn Lúther. Svipmyndir úr siðbótarsögu, Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag,
2014, bls. 76–82.
49 Creation Not For Sale, frá júní 2015, sótt 6. janúar 2016 af: https://2017.lutheran-
world.org/content/creation-%E2%80%93-not-sale-131 Höfundar efnis koma frá
öllum heimshornum og áherslurnar eru af ýmsu tagi.
50 LH gefur út ritröð með greinum um mismunandi efni. Hefti 2. árið 2009 var God,
Creation and Climate Change. Umræðuheftið sem vitnað er til er fyrsti kafli heftisins
og byggist á könnun á vegum LH frá 2008. Þannig var umræðuheftið hluti stærra
rits og sett inn í það síðar.
51 God, Creation and Climate Change. Spiritual and Ethical Perspectives, sótt 3. janúar
2016 af: http://www.amazon.com/God-Creation-Climate-Change-Perspectives/
dp/1932688420.
52 God, Creation and Climate Change. A Resourse for Reflection and Discussion, sótt 9.
janúar 2016 af: http://www.e-alliance.ch/fileadmin/user_upload/docs/God__Cre-
ation_and_Climate_Change.pdf.
53 Mikilvægt að undirstrika muninn á efni frá LH og því sem skoðað er frá kaþólsku
kirkjunni. Lútherska heimssambandið gefur sig ekki út fyrir að hafa kennivald af
því tagi sem kemur fram í páfabréfi. Þvert á móti er lögð á það áhersla í heftinu að
þau sjónarmið sem þar birtast endurspegli ekki nauðsynlega opinbera afstöðu LH
heldur séu þau á ábyrgð viðkomandi lútherskra fræðimanna.
54 Guðni Elísson hefur bent á hvernig kristin dómsdagshugsun er stundum lituð af
hugmyndum um alvarlegar loftslagsbreytingar. Sjá: „Lita dómsdagsspár hugmyndir
manna um loftslagsvísindi?“, Rekferðir, Reykjavík: Háskólaútgáfan, bls. 398–309
og 338–341. Greinin birtist upphaflega í Lesbók Morgunblaðsins 19. apríl 2008, bls.
8–9.
TRú OG LOFTSLAGSBREYTINGAR