Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2016, Page 78
77
ræmi við fyrri siðferðilega orðræðu um umhverfismál og náttúruvernd?
Þá verður hin trúarlega orðræða um loftslagsmál tengd valdi. Í upphafi
vil ég í örfáum orðum beina sjónum að eldri yfirlýsingu um umhverfismál
sem segja má að sé viss fyrirrennari þess efnis sem er í brennidepli í þessari
grein og kallast á við það. Tengsl trúar og vísinda eru þar aðalatriði.
Glæpir mannkyns gegn náttúrunni
Árið 1990 stóð hinn þekkti stjörnufræðingur Carl Sagan að sameiginlegu
ákalli vísindamanna og trúarleiðtoga til trúar- og vísindasamfélagins þar
sem þess var farið á leit að þau beittu sér í auknum mæli í umhverfismál-
um, í þágu mannkyns.16 Orðfæri og inntak ákallsins er áhugavert í sam-
hengi þessarar greinar en þar er því haldið fram að öllu lífi á jörðinni sé
ógnað af völdum loftslagsbreytinga og orsök þessa séu athafnir og gjörðir
mannkyns.17 Djúpt er tekið í árinni og loftslagsbreytingarnar skilgreindar
sem glæpir gegn náttúrunni sem allt mannkyn eigi sök á vegna lífshátta
sinna. Siðferðilegur boðskapur ákallsins er í stuttu máli sá að mannkyn allt
verði að sýna samstöðu og setja markmið sem tryggi líf komandi kynslóða,
bæði manna og annarra lífvera.18 Vísinda- og trúarsamfélagið eru sögð
vera í lykilaðstöðu hvað þetta áhræri og vísað til eftirminnilegrar fram-
göngu trúaðs fólks í málefnum sem varða frið, umhverfi, mannréttindi og
félagslegt réttlæti, sbr. áherslur og verkefni Alkirkjuráðsins frá 9. áratug
síðustu aldar „Justice, Peace and the Integrity of Creation“.19 Í lokakafla
ákallsins sem er beint að trúarsamfélaginu segir svo:
Sem vísindamenn hafa mörg okkar reynslu af djúpstæðri lotn-
ingu og virðingu andspænis alheiminum. Við skiljum að heilag-
leika fylgir umhyggja og virðing. Á sama hátt eigum við að líta á
jörðina sem heilagt fyrirbæri sem krefst réttlátrar meðhöndlun-
ar. Jafnframt þessu viðhorfi er nauðsynlegt að öðlast dýpri
16 Preserving & Cherishing the Earth. An Appeal for Joint Commitment in Science &
Religion, janúar 1990, sótt 1. desember 2015 af: http://fore.yale.edu/publications/
statements/preserve/ Sótt 30. mars 2016.
17 Hér er mikilvægt að hafa í huga að allur 9. áratugurinn einkenndist af gróskumiklu
starfi kirkna og Alkirkjuráðsins um umhverfismál, sbr. umræðuna hér að framan.
Yfirlýsing Carl Sagan og félaga var því ekki sett fram í neinu tómarúmi, þvert á
móti má líta á framlag þeirra sem andsvar við starfsemi kirknanna.
18 Hér er kastljósinu beint að lífi komandi kynslóða, sbr. áherslur Brundtland-skýrsl-
unnar.
19 Sbr. starf Alkirkjuráðsins á 9. áratugnum, sjá nmgr. 7 hér að framan.
TRú OG LOFTSLAGSBREYTINGAR