Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2016, Page 83
82
ráðsmennska mannsins er túlkun á ritningarstað í Fyrstu Mósebók þar sem
segir: „Þá tók Drottinn Guð manninn og setti hann í aldingarðinn Eden til
að yrkja hann og gæta hans.“ (1Mós.2.15) Viðtekin túlkun, einkum í sam-
hengi mótmælendatrúar, á þessu stefi er að þar birtist vilji Guðs sem mann-
inum beri að hlýða. Köllun mannsins felist í að þjóna skaparanum og gæta
garðs hans. Boðandi kraftur þessarar líkingar sækir því ekki, eins og áður er
að vikið, kraft sinn til sjálfstæðs gildis náttúrunnar, heldur til boða Guðs.
Hið góða er gott af því að Guð vill það, vilji Guðs ákvarðar siðferðið.36
Þessi kjarnahugtök og mörg fleiri koma fyrir í því efni sem skoðað
verður hér á eftir. Kristnir trúarleiðtogar, kirknasamtök og trúarsamfélög
velja að nálgast loftslagsvandamálin fyrst og fremst siðferðilega og nýta
biblíuleg stef og frásagnir til að leggja áherslu á ákveðin gildi sem krefja
mannkyn um nýjan umgengnishátt við jörðina. Með því má segja að þeir
aðilar leggi sitt af mörkum til nýs skilnings á Guði, manni og náttúru. Með
tilvísun í hin víðþekktu stef í trú og menningu boða trúaryfirlýsingarnar
samstöðu og miskunnsemi við þá sem höllustum fæti standa, sem eru hinir
fátækustu á jörðinni, kynslóðir framtíðarinnar og lífríkið allt, ásamt hóg-
værð og nægjusemi í lifnaðarháttum. Fyrirmyndin er Jesús Kristur, sá sem
samsamaði sig hinum málsvarslausu, útskúfuðu og hjálparlausu og hikaði
ekki við að ganga gegn viðteknum viðmiðum og valdboðum.
Gullna reglan og líf komandi kynslóða
Ég byrja á að skoða tvær stuttar yfirlýsingar en boðskap og hvatningu
beggja er beint að þjóðar- og stjórnmálaleiðtogum. Sú fyrri varð til að
frumkvæði Alkirkjuráðsins og var sett á veraldarvefinn um mánuði fyrir
COP21 og nefnist Statement of Faith and Spiritual Leaders on the upcom-
ures on Genesis, kaflar 1–5, bls. 102–106. Dæmi um þau má finna víða, einnig hjá
íslenskum guðfræðingum, s.s. Björn Björnsson, „Maðurinn í gagnvirkum tengslum
við náttúruna“; Sigurður Árni Þórðarson, „Allt eins og blómstrið eina“ og María
Ágústsdóttir, „„Hyggið að liljum vallarins“ … – af skynjun manns í sköpun Guðs“.
Allar þessar greinar er að finna í bókinni Náttúrusýn. Safn greina um siðfræði og nátt-
úru, ritstj. Róbert H. Haraldsson og Þorvarður Árnason.
36 Inntak ráðsmennskuhlutverksins, að rækta og þróa jörðina í þágu Guðs, hefur legið
undir miklu ámæli um langa hríð, eða allt frá því að Lynn White Jr. birti grein sína
1967 þar sem hann gagnrýndi túlkun kristinna manna á ráðsmennskuhlutverkinu
og taldi að ill meðferð á jörðinni ætti einkum rætur að rekja til hennar, sbr. at-
hugasemdir í neðanmálsgrein 3. Lynn White, Jr. „The Historical Roots of Our
Ecologic Crisis“, bls. 1203–1207. Mun minna hefur verið stuðst við þetta þema
síðustu ár, miðað við t.d. á 7. og 8. áratug síðustu aldar.
SÓLVEIG ANNA BÓASDÓTTIR