Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Page 61
60
og veitum þeim virðingu, en hlutgerum aðrar og afneitum öllum venslum.
Ummyndanir fornaldarsagna, hamskipti og tegundablendingar bera á sinn
hátt vitni um þessa tilvistarlegu krísu og mögulega er fantasían um kynlíf á
milli tegunda einnig hluti af þeim flækjum.
Grein Singers vakti hörð viðbrögð beggja megin borðsins, jafnt meðal
dýraréttindasinna og andstæðinga þeirra. Singer virðist hafa séð viðbrögð
andstæðinganna fyrir með gagnrýni sinni á hina ímynduðu gjá sem marg-
ir trúa að sé til staðar á milli okkar og annarra tegunda. Aktivistinn og
enskuprófessorinn Karen Davis hefur bent á að hörð viðbrögð almennra
fréttamiðla við „Heavy Petting“ virðast einkum hafa snúist um að með því
að réttlæta kynlíf með dýrum grafi Singer undan sérstöðu mannsins og að
verknaðurinn sé þannig móðgun við sæmd okkar tegundar.10 Þannig getur
kynlíf með dýrum ógnað hugmyndafræði mannmiðjunnar, því það dregur
mannveruna niður af guðlegum stalli og ofan í dýrslega svaðið. Líkamar
okkar og annarra dýra eru alls ekki svo ólíkir og í sumum tilvikum því ekk-
ert til fyrirstöðu – líffræðilega séð – að tveir líkamar af ólíkum dýrategund-
um geti notið hvors annars, líkt og í dæminu um geiturnar og munkana
sem vísað var til hér í upphafi. Singer heldur því fram að kynlíf með öðru
dýri geti átt sér stað á jöfnum grundvelli og tekur dæmi um hunda sem
riðlast á fótleggjum mannfólks:
Kynlíf með dýrum felur ekki alltaf í sér grimmd. Hver kannast ekki
við að sjá heimilishundinn grípa um fótlegg einhvers gestsins á
samkomu og nudda getnaðarlimi sínum kröftuglega upp við hann?
Gestgjafinn reynir iðulega að sporna gegn slíkri hegðun, en á bak
við luktar dyr eru ekki allir mótfallnir því að hundar noti sig á þenn-
an hátt, og endrum og sinnum getur komið fram hegðun sem veitir
báðum aðilum unað.11
Lifandi dæmi um þetta er Lori úr Animal Passions (2004), heimildamynd
sem kynnir áhorfendur fyrir daglegu lífi nokkurra dýrhneigðra einstak-
10 Karen Davis, „Bestiality: Animal Liberation or Human License?“, United Poultry
Concerns, 22. apríl 2001, sótt 22. apríl 2016 af http://www.upc-online.org/010422-
bestiality.html.
11 „Sex with animals does not always involve cruelty. Who has not been at a social
occasion disrupted by the household dog gripping the legs of a visitor and vigoro-
usly rubbing its penis against them? The host usually discourages such activities,
but in private not everyone objects to being used by her or his dog in this way, and
occasionally mutually satisfying activities may develop [...]“ Peter Singer, „Heavy
Petting“.
GunnAR ThEodóR EGGERTSSon