Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Blaðsíða 62
61
linga. Lori er bandarísk húsmóðir sem á í samlífi við fjölskylduhundinn,
Baby Golden. „Margir mennskir karlar fíla bara ekki forleik,“ útskýrir
hún aðspurð um samanburð á milli manns og hunds í rúminu, „en hundar
elska forleik! Þeir elska að skemmta sér, þeir elska að stunda kynlíf.“12
Þulurinn talar um hundinn sem „elskhuga“ konunnar og eiginmaður
hennar, Michael, talar af aðdáun um þá sterku ást sem er til staðar á milli
Lori og Baby Golden. Í slíkum tilfellum virðist mannfólk hafa gengið
inn í gagnkvæmt ástarsamband með dýri af annarri tegund þar sem báðir
aðilar fá einhvers konar líkamlega nautn út úr því. Singer færir þó rök
fyrir ólíkum þrepum innan dýrakynlífs og bendir t.d. á að hænur lifi oft
ekki af kynlíf með mannfólki, því líkamarnir eru ósamrýmanlegir. Sumir
kynlífsverknaðir eru þannig augljóslega ofbeldisfullir gagnvart dýrinu, sem
er misþyrmt eða drepið, en aðrir þurfa ekki endilega að vera það og gætu
mögulega verið jákvæðir fyrir báða aðila.
Ein helstu rökin gegn þeim sem stunda kynlíf með dýrum eru að það
sé ósanngjarnt gagnvart dýrinu sem geti aldrei gefið samþykki sitt fyrir
verknaðinum. Í Animal Passions kynnast áhorfendur alls kyns fólki sem á
í nánu sambandi við dýrin sín á einn eða annan hátt, jafnt einstæðingum
sem vinahópum og pörum. Einn þeirra viðmælanda er Mark, sem gekk svo
langt til að sanna dýraást sína fyrir heiminum að hann gekk í hjónaband
með smámerinni Pixel í óformlegri athöfn. Hann heldur því staðfastlega
fram að merin gefi honum samþykki og að kynlíf þeirra sé gagnkvæmt
samband, þar sem báðir aðilar fái eitthvað út úr athöfninni og ekki er
farið illa með neinn. Aðspurður hvort hann sé ekki að þröngva ástinni (og
kynlífinu) upp á merina bendir hann á að hestur geti auðveldlega gefið til
kynna ósamþykki sé hann ósáttur við meðferðina:
Tökum Pixel sem dæmi. Hún er ekki bundin, hún gæti gengið í
burtu. Hún gæti hlaupið í burtu. Hún gæti sparkað mig í klessu.
Hún gæti bitið. Hross eru ekki varnarlaus. vinir mínir með hunda
... hefurðu einhvern tímann reynt að gera eitthvað við hund sem
hundinum líkar ekki? Að minnsta kosti hund sem er enn með allar
tennurnar?13
12 „A lot of human men just don’t like foreplay. Dogs love foreplay! They love to
have a good time, they love to have sex.“ Animal Passions, leikstjóri: Christopher
Spencer, Optomen Television, 2004.
13 „Take Pixel for example. She’s not tied up, she could walk away. She could run
away. She could kick the living bejeezus out of me. She could bite. Horses are
DýRSLEGAR NAUTNiR