Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Side 86
85
ævilangt. Ástæðunnar er ugglaust að leita í vaxandi óvissu og óróleika af
völdum siðbótarinnar sem tekin var að hafa áhrif meðal ungra mennta- og
„aðals“-manna heima á biskupsstólnum en annars staðar voru vart for-
sendur fyrir hreyfingar af þessum toga.19 Óskaði Ögmundur að konungur
skipaði Gissur Einarsson (um 1512–1548), sem var skjólstæðingur hans,
eftirmann sinn en hafði áður reynt að tryggja sér „rétttrúaðan“ (þ.e. mið-
aldakaþólskan) eftirmann. Gissur hafði aftur á móti fallið í ónáð vegna
lútherskra tilhneiginga. valið á Gissuri sýnir raunsæi Ögmundar en Gissur
uppfyllti þau mikilvægu skilyrði að vera háður Ögmundi en geta jafnframt
unnið traust konungs vegna lútherskrar trúar sinnar. Konungur skipaði
Gissur í embættið 1540 og tók hann við forræði biskupsstólsins um sum-
arið auk þess sem 24 prestar saman komnir á prestastefnu á Þingvöllum
um þingtímann sóru honum trúnað gegn því að hann breytti engu í kirkju-
málum nema með samþykki þeirra. Sumarið eftir (1541) sendi konungur
Christoffer Huitfeldt (um 1501–1559), flotaforingja með hirðstjóratign,
til landsins. Hann handtók Ögmund sem enn hafði mikil ítök í biskups-
dæminu og þrýsti á um að 26 kennimenn saman komnir á prestastefnu á
Þingvöllum samþykktu kirkjuskipan konungs sem fyrst hafði verið send
hingað til staðfestingar 1538. Áður en Gissur gegndi utanstefnu konungs
til beggja íslensku biskupanna vegna siðaskiptanna 1542 fékk hann að
nýju samþykki 28 kennimanna fyrir kirkjuskipaninni á prestastefnu sem
að þessu sinni kom saman í Miðdal. Alls höfðu þá 42 af á annað hundr-
að presta stiftisins samþykkt biskupsdóm Gissurar og/eða kirkjuskipanina
þar sem ýmsir sömu mennirnir tóku þátt í fleiri en einni prestastefnu.
var hann loks vígður lútherskri biskupsvígslu haustið 1542.20 Þar með
voru siðaskipti um garð gengin í Skálholtsbiskupsdæmi og hafði þar lostið
saman viðleitni Ögmundar Pálssonar að tryggja friðsamlega þróun frá
miðaldakristni til kristnihalds sem fremur félli að vilja konungs og vaxandi
þrýstingi konungs sem lét þó hjá líða að senda landsmönnum evangelískan
biskup áður en að ítrekað samþykki þeirra fyrir kirkjuskipaninni lægi fyrir
– að minnsta kosti málamyndasamþykki.
19 Loftur Guttormsson, Frá siðaskiptum til upplýsingar, bls. 49–54. vilborg Auður
Ísleifsdóttir, Byltingin að ofan, bls. 139–160.
20 13 prestar höfðu tekið þátt í öllum þremur staðfestingunum en 10 í tveimur
þeirra. Íslenzkt fornbréfasafn/Diplomatarium Islandicum X, Reykjavík: Hið íslenska
bókmenntafélag, 1911–1921, bls. 529–531, 632–633. Íslenzkt fornbréfasafn/Diplo-
matarium Islandicum Xi, Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, 1915–1925, bls.
135–137. Loftur Guttormsson, Frá siðaskiptum til upplýsingar, bls. 54–62.
HvENÆR URðUM við LúTHERSK?