Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Page 96
95
17. aldar (um það bil 1560–1630) og láta þar við sitja.48 væri þá nokkurn
veginn um sama tíma að ræða og stílfræðilega séð er nefndur siðbreyting-
artími og tími fornmenntastefnunnar í bókmenntasögunni. Þannig markar
barokktíminn (síðari hluti 17. aldar og fyrri hluti 18. aldar) upphaf hins
eiginlega lútherska skeiðs í sögu okkar. Þá er horft framhjá siðaskiptum á
sumum þeirra sviða sem að framan eru talin, að minnsta kosti á sviði trúar-
háttanna sem teygir siðaskiptatímann enn lengra fram enda ekki mögulegt
að tala um bylgju í því sambandi sökum þess hve hægfara þróunin var. Um
þetta fyrirbæri er því heppilegt að viðhafa annað hugtak og verður það
nefnt siðbreyting hér (sjá nmgr. 2). Þá hægu langtímaþróun ber líka að
skoða sem hluta af siðbreytingunni sem hér er litið á sem sérstakt fyrirbæri
aðgreint frá siðaskiptunum.49
Hvenær hættum við að vera lúthersk?
Spyrja má hvort við Íslendingar séum enn lúthersk þjóð í annarri merk-
ingu en sögulegri.50 verði svarið neitandi er áhugavert að spyrja hvenær
við höfum hætt að vera það. verði svarið á hinn bóginn á þá lund að við
séum enn lúthersk má aftur á móti spyrja hvenær við munum hætta því
einhvern tímann í framtíðinni. Er þá átt við að flestar þær viðmiðanir sem
eðlilegt er að beita við ákvörðun „hins lútherska“ í menningu okkar og
samfélagi muni fyrr eða síðar gefa neikvæð svör hafi þær ekki þegar tekið
að gera það. Hinn lútherski kafli í sögu okkar verður þó aldrei frá okkur
tekinn og mikilvægt er að við metum hann af sögulegri sanngirni og lifum
með lútherskri fortíð okkar á nýskapandi máta.51
48 Sjá yfirlit Þóris Óskarssonar í Íslensk stílfræði, ritstj. Þorleifur Hauksson, Reykjavík:
Styrktarsjóður Þórbergs Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur Háskóla Íslands,
Mál og menning, 1994, bls. 338.
49 Loftur Guttormsson, Frá siðaskiptum til upplýsingar, bls. 11. Hjalti Hugason, „Heiti
sem skapa rými“, bls. 227.
50 Er með því átt við að íslenska samfélagið hafi á ákveðnu tímabili verið mótað af
trúarmenningu sem var inntakslega séð lúthersk (sjá hér framar).
51 Á síðari tímum má merkja aukna spennu milli veraldlegra og trúarlegra sjónarmiða
í samfélagsumræðu hér á landi. Eðlilegt er að margháttað uppgjör eigi sér stað í
kjölfar þeirra stórstígu breytinga sem urðu á 20. öld og bundu enda á samfélags-
lega einingu á kristnum-lútherskum grunni og ruddu fjölhyggju braut m.a. í trú-
arefnum. Skýrt dæmi um þetta má finna í „Bakþönkum“ Frosta Logasonar undir
fyrirsögninni „Sannleikurinn í hæstarétti“ í Fréttablaðinu 2. júlí 2015. Almennari
dæmi um uppgjörið koma m.a. fram í störfum samtakanna Siðmenntar og ekki síst
þeirri stefnumörkun sem þau hafa beitt sér fyrir í samskiptum skóla og lífsskoð-
HvENÆR URðUM við LúTHERSK?