Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Page 143
142
mér og gefa of mikið í verkið.“ (Brot úr viðtali 21. Kvenmaður,
Austur Evrópa.)
Nokkrir aðilar sem komu til að vinna hérlendis í nokkra mánuði fóru
aldrei aftur til síns heimalands en settust að á Íslandi til frambúðar; Þeir
enduðu sem sagt á því að hafa hér fasta búsetu þótt lagt hafi verið upp með
tímabundna dvöl. Þessir innflytjendur skýra komu sína til landsins eins og
tilviljunarkenndan atburð sem endaði á besta veg. Eins konar flótta sem
frekar var ósjálfráður en að sóst hafi verið eftir honum. viðmælendurnir
eru þá yfirleitt að leita eftir vinnu og nýrri upplifun fyrir sig og fjölskyld-
una og það var aðeins tilviljun að drepið var niður fæti í litlum, afslöpp-
uðum bæ.
Möguleikar á ávinningi
Rúmur helmingur þátttakenda nefndi vinnu sem meginástæðu fyrir flutn-
ingi til Íslands og á alþjóðavísu er það hin almenna forsenda fyrir flutn-
ingum fólks, vonin um betri fjárhagslega framtíð.13 Rannsókn Markusar
Meckl og Kjartans Ólafssonar frá 201314 sýndi fram á að innkoma virðist
hafa lítið að gera með hamingju á meðal innflytjenda á Akureyri. Sama
sýna margar aðrar rannsóknir sem hafa skoðað samhengið milli peninga
og hamingju.15 Ef setningin „ég hef allt sem ég þarfnast“ heyrðist nokkr-
um sinnum í viðtali nefndi viðmælandinn varla innkomu á nafn. Það er
erfitt að fullyrða hvort það sé vegna þess að slíkt sé ekki afgerandi þáttur
í vellíðan þeirra eða hvort fólki finnist óþægilegt að tala um peninga. Ef
meiri hamingja verður ekki endilega keypt fyrir peninga,16 þá er starfs-
ánægja á hinn bóginn mikilvægur þáttur í vellíðan þátttakanda. Auk þess
að hafa vinnu til að greiða skatta og skyldur, gera þátttakendur ráð fyrir að
vinnan verði ákveðin reynsla.
Fæstir viðmælendanna voru fullkomlega ánægðir með faglegu stöðu
sína. Þrátt fyrir það var viðhorfið á þá leið að það væri í lagi að þola smá-
vegis mótlæti sem fórnarkostnað til að ná stærri markmiðum: „Stundum
þegar þú ert að reyna að öðlast eitthvað verður þú að ganga í gegnum
13 Russell King, Theories and Typologies of Migration: An Overview and a Primer, Willy
Brandt Series of Working Papers in international and Ethnic Relations, Malmö:
Malmö institute for Studies of Migration, Diversity and Welfare, 2012.
14 Kjartan Ólafsson og Markus Meckl, „Foreigners at the end of the fjord“, bls. 8.
15 Carol Graham, The Pursuit of Happiness: An Economy of Well-Being, Washington
DC: Brookings institution Press, 2011.
16 Sama rit, bls. 36.
MARKuS MEcKl / STéphAniE BARillé