Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Blaðsíða 182
181
gengilegu afurða fyrirtækisins er kvikmyndaröðin Hanastél (e. Cocktails),
þar sem konum er riðið í munn þar til þær kasta upp og þær síðan neydd-
ar til að drekka hráka-, ælu- og sæðisblönduna; Forndýrareiðar (e. Fossil
Fuckers), þar sem allt frá miðaldra upp í aldraðar konur stunda kynlíf með
ungum mönnum; gonsómyndamerkið Löðrungagleði (e. Slap Happy), þar
sem hver mynd samanstendur af röð stuttra atriða þar sem Alek James
Hidell heldur konum á hárinu, lætur þær koktotta sig þar til þær kúgast,
kasta upp eða örmagnast, og slær þær síðan eða heldur fyrir nefið á þeim
á milli svo þær geta ekki andað; og svo framvegis. Hér er kvikmyndin
Innbrot notuð til þess að hugsa um gróft kynlíf í klámi sem formlögmál;
þessi flokkun grófleikans sem formgerðar er síðan víkkuð út til að íhuga
hvaða möguleika hin mikla ó-slétta gæti falið í sér til endurmats á sjálfri
hugmyndinni um varðveislu klámsins.
Ég held því fram að raunverulegt gróft kynlíf sem fest er á filmu eða
framsetning á grófu kynlífi í frásögn skapi formvanda í klámi (og það ætti
ekki að þurfa að taka það fram að framsetning og athöfn eru ekki það sama,
þótt mörkin séu óljós hér). Gróft kynlíf leiðir af sér gróft form, form sem
er óformlegt og óformað, sem verður lauslegt, ójafnt og rofið, form sem
er brotið og bramlað og lagt í rúst. Gróft kynlíf, eins og ég nota orðasam-
bandið, er ekki einn af sérstaklega markaðssettum undirflokkum kláms;
né heldur er hægt að smætta það niður í upptalningu ákveðinna athafna
sem eru framkvæmdar eða kvikmyndaðar (bukkake, að rífa í hár, hrækja,
slá, kýla og lemstra, að kokríða eða kyrkja, pissuleikir, bindingar, snerting
rass við munn, niðurlæging, nauðganir, pyntingar); og það er sannarlega
ekki notað yfir ytri mörk hins klámfengna velsæmis eða sem annað nafn
yfir brot gegn lögum um samþykki, ritskoðun eða almennt velsæmi. Þvert
á móti táknar gróft kynlíf það hvernig kynferðislegt og líkamlegt ofbeldi
sem einnig er frásagnarlegt ofbeldi (og sem er þar að auki kvikmyndað
og raunverulegt, þótt ofbeldið sé fyrirfram takmarkað samkvæmt undir-
rituðum samningi) veldur fagurfræðilegri formtruflun. Grófleiki er öflug
aðferð til sköpunar þar sem líkamar sem ýtt er að sínum ystu mörkum
flækja og ýfa hið formlega tungumál klámsins.
Brotin, rifin form
Innbrot er ein af illræmdu „alríkismyndunum fimm“ sem komu framleið-
anda sínum (Black) og leikstjóra (Borden) í alríkisfangelsi vegna ákæru
um brot gegn almennu velsæmi, eftir sex ára baráttu fyrir dómstólum
GRÓFiR DRÆTTiR