Skírnir - 01.09.2007, Page 4
Frá rit stjór a
Hausthefti Skírnis er óvenju stórt í ár og má segja að það sé til heiðurs þeim Jónasi
Hallgrímssyni og Tómasi Sæmundssyni, en í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu þeirra
fóstbræðra sem í skrifum sínum og störfum sameinuðu áhuga á bókmenntum,
náttúru, stjórnmálum og íslenskri sem erlendri menningu — og voru að sjálfsögðu
báðir félagsmenn Hins íslenska bókmenntafélags. Er tímamótanna minnst með
nokkrum greinum í heftinu: Sigurður Líndal varpar nýju og óvæntu ljósi á ágrein-
ing Tómasar Sæmundssonar og Jóns Sigurðssonar um leiðir í sjálfstæðis baráttunni,
en Guðmundur Hálfdanarson nálgast stjórnmálaskoðanir Fjölnis manna úr annarri
átt. Páll Valsson freistar þess að tengja hugsun Jónasar við kapp ræðuefni samtím-
ans í grein í Skírnismálum og þá ræðir Sveinn Yngvi Egilsson náttúrusýn Jónasar
eins og hún birtist í kveðskap hans.
„Allt mannkynið hefir frá byrjun veraldar til þessa dags verið sem sam -
hangandi keðja hver sérhvör hlekkur er við annan áfastur, hvört land, hvör þjóð
hefur verið annarri til styrktar og framfaraauka vitanliga og óvitanliga og engin
þjóð getur stoltað af því að hún hafi öllum kennt en ekki lært af nokkurri,“ skrifaði
Tómas Sæmundsson forðum í Ferðabók sína, svo það er í anda hans að ræða stöðu
Íslands á tímum hnattvæðingar, eins og Jón Sigurðsson gerir í þessu hefti, og
Magnús Þór Snæbjörnsson með sínum hætti þegar hann tekur Draumaland Andra
Snæs Magnasonar á orðinu sem sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð og gagnrýnir
hana út frá kenningum Slavojs Žižek. Það er einnig gagnrýninn undirtónn í grein
Páls Skúlasonar um kreppu háskóla og kjarna háskólastarfs.
Greinar um bókmenntir sýna vel hve þær spanna stórt svið, frá munnlegri
geymd til heimspekiáhrifa: Kristín Unnsteinsdóttir segir frá fjórum sagnakonum
úr Fljótshlíð og Jóhann Páll Árnason skrifar um Spengler í Alþýðu bók Halldórs
Laxness. Heimspekigrein Skírnis að þessu sinni er eftir sagn fræðing: Gunnar
Karlsson skrifar um tilviljunina. Þau Sjón, Þórdís Björnsdóttir og Vésteinn
Lúðvíksson eiga frumsamið bókmenntaefni í heftinu, en Úlfhildur Dags dóttir og
Susanne Lettow skrifa ritdóma. Myndlistarmaður Skírnis að þessu sinni er
Matthew Barney, sem hefur sterk tengsl við Ísland og gerði forsíðuna sérstak lega
fyrir þetta hefti, en Ólafur Gíslason ritar afar forvitnilega grein þar sem raktir eru
þræðir milli kvikmyndar Barneys og ítalskra endurreisnarbókmennta. Í listum er
sérhver hlekkur við annan áfastur rétt eins og í samfélagi þjóðanna.
Góða skemmt un!
Halldór Guðmundsson