Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Side 81

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Side 81
A r a b í s k a v o r i ð TMM 2011 · 3 81 sem tíðkast hafi og staðföst neitun fjöldans að láta að stjórn eins og tíðkast hafi. Uppreisnirnar í Miðausturlöndum eru birtingarmynd slíks ástands. Víðast hvar má greina þrjá meginstrauma sem reyna nú að ná undir- tökum í umrótinu sem fylgdi uppreisnunum – ef frá er talinn gamli valdakjarninn. Í fyrsta lagi eru það islamistarnir sem eru vel skipulagðir og búa að áratuga hefð. Í Egyptalandi mun Múslimska bræðralagið án efa spila stórt hlutverk. Þeir eru hins vegar ekki einsleitur hópur frekar en aðrir islamistar og ungu fólki innan bræðralagsins þykir t.d. forysta þess of íhaldssöm og mótuð af gamla Egyptalandi. Í öðru lagi eru svo ungir lýðræðissinnar sem eru ótruflaðir af pólitískum hefðum og kreddum en sækja sumir hverjir styrk í frjálslynd sjónarmið og lýðræðistilraunir sem gerðar voru í arabaheiminum á fyrri hluta 20. aldar. Í þriðja lagi eru svo fulltrúar fjármagnsins sem munu reyna að hrista af sér ábyrgðina á samneytinu við fyrri valdhafa og búa til ný sambönd. Fyrst um sinn eru islamistarnir líklegir til að hafa sterka stöðu en án efa munu hinir sækja í sig veðrið þegar fram líða stundir auk þess sem nýir flokkar munu koma fram og bæði ögra og hafa áhrif á þá sem fyrir eru. Bandalög og hagsmunir munu breytast. Enn er svo með öllu óljóst hvaða hlutverk herinn mun leika í stjórnkerfinu á komandi misserum en það verður áreiðanlega erfitt fyrir mótmælendur með sitt flata skipulag og herinn með sitt öfluga miðstýrða kerfi að ná saman. Án efa á margt ungt fólk í arabaheiminum eftir að upplifa svik við hugsjónir uppreisnarinnar. Mjög líklegt er að hinum sjálfsprottnu for- ystumönnum uppreisnanna finnist sem þeim sé ýtt út á jaðarinn og þeir gerðir áhrifalausir. Styrkur uppreisnarhreyfingarinnar sem fólst í því að hún varð til fyrir utan valdakerfið, án hefðbundins skipulags og forystu, getur orðið veikleiki hennar þegar uppreisnarástandinu lýkur. Uppreisnarhreyfingin hefur hins vegar hrakið spillta stjórnarherra frá völdum, og skotið öðrum skelk í bringu, með aðferðafræði hinna frið- samlegu en staðföstu fjöldamótmæla sem endurspegla þarfir og óskir almennings. Uppreisnarhreyfingin varpar ljósi á hversu lítill stuðningur er í raun við hugmyndir islamista og aðferðafræði hinnar vopnuðu upp- reisnar eða jihad undir forystu rétttrúaðra. Þessi aðferðafræði ofbeldisins hefur hitt múslima sjálfa fyrir og átt þátt í að kalla yfir þá ómældar hörmungar, s.s. á herteknu svæðunum í Palestínu, Írak og Afganistan. En ofbeldið hefur ekki aðeins leitt hörmungar yfir fólkið heldur hefur það engum árangri skilað sem baráttuaðferð gegn spilltri valdstjórn. En nú fylgja þessir sömu islamistar í humátt á eftir mótmælendum og styðja uppreisn þeirra ýmist beint eða óbeint. Jafnvel það undarlega hefur gerst
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.