Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 20

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 20
E i n a r M á r G u ð m u n d s s o n 20 TMM 2012 · 1 Höfum í huga að Keflavíkurflugvöllur var lítil Ameríka, sjálfstætt ríki eða smækkuð mynd innan við gaddavírsgirðingu, á auðum mel, í hrauni og mosa, því Ameríkönum á alltaf að líða einsog heima hjá sér. Þannig voru herstöðvar þeirra um allan heim og þeir trúðu því sjálfir að þeir væru að bjarga heiminum. Á Keflavíkurflugvelli hefði jafnvel verið hægt að taka upp kvikmynd einsog American Graffiti eða einhverja ámóta smábæjarmynd; fyrir utan hertól og vígvélar voru þarna skólar, kvikmyndahús, veitingahús, barir, íþróttavellir, útvarpsstöð, sjónvarps- stöð, eiginlega allt sem prýða má eitt samfélag. Ruslið frá herstöðinni var fimm sinnum meira en frá öðrum jafn stórum sveitafélögum og sagt var að ef allur heimurinn lifði einsog þessi litla herstöð þyrfti ekki færri en fjörutíuogsjö plánetur. En svona er þetta ekki lengur, því herinn er farinn, sjálfviljugur og án nokkurs brambolts. Andstæðingar hersetunnar voru búnir að leggja á sig fimmtíu kílómetra langar mótmælagöngur árum saman, án árangurs, en eftir að þær voru hættar pakkaði herinn bara saman og fór, eiginlega án þess að kveðja. Hann bara fór, einsog kona frá manni, eiginlega ekki af neinni sérstakri ástæðu. Hún lofar að fara ekki en fer samt. Það vissu allir að herstöðin var orðin gagnslaus. Ameríkanarnir höfðu engin not fyrir hana lengur. Hún var of dýr í rekstri og hafði líklega aldrei gert neitt gagn. Ég meina, Rússar voru ekkert á leiðinni hingað. Eftir á að hyggja var helsta gagn hersins að útvarpa rokktónlist yfir Suðurnesin þannig að þaðan komu bestu hljómsveitirnar á sjöunda áratugnum. Keflavík var sögð Liverpool Íslands, enda líka amerísk her- stöð þar, og báðir bæirnir hafnarbæir. En fyrst og fremst mokaði herinn undir yfirstétt verktaka, sem aftur réð fólk í vinnu, sem auðvitað var líka gagnlegt, og gaf á garðann hjá stjórnmálamönnum. Spillingin í þjóð- félaginu er oft rakin til hersins og viðskiptanna í kringum hann. *** Þessi saga er alltaf að breytast. Hún hefur komið til mín í ýmsum myndum, óskrifuð, hálfskrifuð, fullskrifuð. Hún breytist af því að veru- leikinn er aldrei eins. Nýlega dó Joe Allard og því tileinka ég honum söguna. Joe var frábær náungi, hét fullu nafni Joseph Cristopher Allard og fæddist 21. apríl árið 1948 í Connecticut í Bandaríkjunum. Hann nam bók menntir, listasögu og tónlist og lauk doktorsprófi frá háskólanum í Essex í Englandi. Þar var hann lektor frá árinu 1977 og þar til í ágúst 2011. Þá fór hann á eftirlaun en lést skömmu síðar. Hann hafði verið gestakennari í Bandaríkjunum, Sviss, Þýskalandi, Japan og á Íslandi. Á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.